%2520einungis%2520fr%25C3%25A1%2520Miele-c3d8c6ae-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Con@ctivity
Snjöll stjórnun
Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algjörlega að eldamennskunni. Þetta er vegna þess að háfurinn og helluborðið eiga í þráðlausum samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um aflstillingar sínar til háfsins, sem aðlagar sogkraft sinn sjálfkrafa eftir þeim og tryggir hámarks loftgæði öllum stundum. Samskiptin milli helluborðs og háfs er komið á annað hvort með ZigBee (Con@ctivity 2.0) eða WiFi (Con@ctivity 3.0).
-80064e20-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
CleanCover
Auðveld og örugg þrif á innrarými
Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Fitufilter úr ryðfríu stáli
Fagurfræði og góð hönnun
Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Virkur AirClean kolafilter
Algerlega lyktarlaust eldhús
Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri getur þú notað virkan kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Þessum einnota filter þarf að skipta út reglulega.

Háfur heldur sogi áfram
Lyktarlaust loft í eldhúsi
Alger hreinsun lofts næst með því að láta háfinn ganga áfram að eldun lokinni. Mögulegt er að stilla háfinn þannig að hann slökkvi sjálfvirkt á sér eftir 5 eða 15 mínútur.

Gaumljós fyrir filtera
Niðurtalning í augnsýn
Þegar fitufilter eða kolafilter Miele háfsins mettast, er það gefið til kynna með rauðu LED ljósi. Fitufilter ætti þá að þrífa sem fyrst og skipta kolafilter út eins fljótt og mögulegt er. Þú getur aðlagað fyrirfram stillta tímalengd fyrir gaumljós filtera eftir þínum þörfum. Gaumljós fyrir mettun fitufilters er hægt að stilla milli 20, 30, 40 og 50 klukkutíma, gaumljós fyrir útskipti kolafilters er hægt að stilla milli 120, 180 eða 240 klukkutíma.

ECO mótor
Hjarta hvers háfs
Mótorinn er hjarta og sál hvers háfs. Sumir Miele háfar er með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.
-b84f7f53-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Öryggisvirkni
Öryggið alltaf sett á oddinn
Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.
