Fara í meginmál

Vörunúmer: SIFNAD5188-22 617

Liebherr

Innbyggður frystiskápur með klakavél & AutoDoor - Peak

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Glæsilegur frystiskápur til innbyggingar úr Peak línu Liebherr. Dyr skápsins er hægt að opna með hefðbundnum hætti eða þannig að hún opnist sjálfvirkt. Þá getur notandinn valið á milli þess að opna dyrnar með raddskipun, snjalltæki eða með því að banka á hurðina sem er einstaklega hentugt fyrir höldulausar innréttingar. Skápurinn er með IceTower klakavél, LED lýsingu, mjúklokun og NoFrost kælitækni sem tryggir að frystinn þarf ekki að affrysta. Skápurinn er vinstri hengdur.

849.990 kr.

Ekki til á lager

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Innbyggður frystiskápur án framhliðar 

Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur vinstri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi, BioFresh Professional & AutoDoor - Peak

AutoDoor - sjálfopnandi dyr

Handfrjáls valkostur: Mögulegt er að opna dyr Liebherr skápsins með því að banka á hurðina eða með raddskipun. Þessi tækni gerir Liebherr skápinn að þeim fyrsta í heimi sem hægt er að opna og loka algerlega sjálfvirkt sem er fullkomið fyrir höldulaus eldhús. Þú getur valið hversu margar gráður dyrnar opnast og hversu lengi þær haldast opnar. Og ef þörf krefur geturðu líka valið að opna og loka dyrunum á hefðbundin hátt með höndunum eða með snjallsímanum þínum.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

IceTower klakavél

Klakarnir munu aldrei klárast í veislunni. IceTower klakavélin sem rúmar 5,7 kg af klökum mun sjá til þess. Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Klakaskúffan situr ásamt annarri skúffu á útdraganlegum brautum sem gerir þér kleift að nálgast klakana á auðveldan hátt. IceTower klakavélin er beintengd sem þýðir að vatnið kemur beint úr krananum. Klakaframleiðslu er hægt að auka með MaxIce stillingu og framleiða allt að 1,5 kg af klökum á sólarhring.  

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Touch & Swipe snertiskjár 

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðfrystingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. 

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Tilkomumikil LED lýsing 

Innihald frystirýmis er vel upplýst með LED ljósi sem er staðsett beint fyrir ofan frystiskúffurnar. Þegar skúffurnar eru dregnar út eru matvælin vel sýnileg og auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. Auk þess er skápurinn með LED lýsingu í klakavélinni sem setur klakana í sviðsljósið og gerir þá enn svalari. 

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Frystiskúffur á útdraganlegum brautum 

Skúffur í frystirými sitja á hálf-útdraganlegum brautum. Þær eru gagnsæjar og matvæli sem í þeim eru geymd því vel sýnileg. Þægilegt aðgengi með lágmarks áreynslu er þannig tryggt, jafnvel þegar skúffurnar eru alveg fullhlaðnar.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Sveigjanlegt frystirými 

Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

Bakki í frystiskúffu 

Frystibakkinn hentar einstaklega vel til þess að frysta viðkvæm matvæli eins og ávexti, ber og jurtir. Með því að dreifa úr matvælunum á bakkanum er hægt að frysta þau hratt og án þess að þau kremjist. Þannig er tryggt að matvælin haldist fersk og brakandi eftir að þau hafa verið afþýdd. Auðvelt er að koma bakkanum fyrir í frystiskúffunni og fjarlægja hann aftur.

Innbyggður frystiskápur - Plus

Einstök þægindi 

NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Hitastýring er elektrónísk og skápurinn einstaklega hljóðlátur.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Peak

SuperFrost hraðfrysting 

Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.