Fara í meginmál

Vörunúmer: EFNEI9471

Liebherr

Innbyggður frystiskápur með klakavél (b:45cm)- Monolith

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Monolith er næsta kynslóð heimiliskælitækja. Gríðarlegt afrek í kælitækni með uppsöfnuðum tækninýjungum sem spanna yfir 60 ára tímabil þökk sé þýsku verkfræðiviti. Monolith skáparnir eru 213,4 cm háir og taka matargeymsluskilyrði á nýjan stað. útdraganlegar skúffur með mjúklokun, innbyggð klakavél, Infinity LED lýsing, snertiskjár, öflug hringrásarkæling og snjallsímaforrit er brot af því sem tækin bjóða uppá. Stórglæsileg tæki og vandað efnisval að innanverðu.

Sérpöntun

Fá tilboð
Innbyggður frystiskápur með klakavél (b:45cm) - Monolith

Monolith – innbyggður frystiskápur án framhliðar

Monolith skápar tilheyra næstu kynslóð fullinnbyggðra kæli- og frystiskápa. Þýskt verkfræðivit ásamt uppsöfnuðum tækninýjungum seinustu 60 ára hafa sett ný viðmið í kælitækni með Monolith skápum. Liebherr hefur lengi verið brautryðjandi í þróun hágæða kælitækja. Kælitækin frá þeim eru þekkt fyrir þróuð geymsluskilyrði matvæla, sveigjanleika í hönnun, hámarks orkunýtni og þægindi við notkun. Efnisval er vandað og eru skáparnir framleiddir í samræmi við hæstu alþjóðlegu gæðastaðla. Mögulegt er að setja innréttingarframhlið framan á Monolith skápana og mynda fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið skápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu.

Innbyggður frystiskápur með klakavél (b:91cm)- Monolith

Klakavél

Sjálfvirka klakavélin í Monolith frystiskápnum framleiðir 1,6 kg af fullkomnum klökum á sólarhring, toppar undirliggjandi skúffu jafnóðum og tryggir þar með nægt framboð. Mögulegt er að auka klakaframleiðslu enn frekar með því að virkja stillinguna SuperFrost. Ferskir og brakandi klakar eru til reiðu fyrir hvers kyns tilefni, hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu.

Innbyggður frystiskápur með klakavél (b:91cm)- Monolith

NoFrost kælitækni

NoFrost kælitækni tryggir langtíma ferskleika matvæla. Matvælin eru fryst með kældu hringrásandi lofti og hvers kyns raki er knúinn út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír, geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum og hvimleiðar afþýðingar tilheyra fortíðinni. Frystiskúffurnar eru fullkomlega lokaðar sem er orkusparandi og varnar því að kalt loft sleppi út þegar frystiskápurinn er opnaður. Þær sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

InfinitySwipe snertiskjár

Stjórnborð Monolith skápsins er staðsett bak við hurðina. 2.4" lita- og snertiskjárinn er allt í senn bjartur, hreinlegur og ótrúlega notendavænn. Þú þarft varla að lyfta fingri til þess að stýra allri virkni skápsins.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

Infinity LED lýsing

Óaðfinnanlega innbyggð InfinityLight veggljós í báðum hliðum varpa fallegum og jöfnum bjarma um allann Monolith skápinn. Þegar hurðin er opnuð eykst styrkur LED lýsingarinnar mjúklega og hægt er að stilla ljósstyrkinn eftir þörfum hvers og eins. Fáguð InfinityBeam ljósasúla lýsir niður á allar frystiskúffurnar. Auðvelt er að sjá hvaða matvæli eru í skúffunum þegar þær eru lokaðar og þegar frystiskúffurnar eru opnaðar lýsir ljómandi LED ljósasúlan matvælin algerlega upp. Infinity LED lýsingin er ekki bara áhrifamikil og flott, heldur er hitamyndun í algjöru lágmarki sem tryggir bestu mögulegu geymsluaðstæður matvæla.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

SoftSystem mjúklokun

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. Hurðarhjarir Monolith skápa eru sterkbyggðar og geta borið allt að 40 kg.*

*burðargeta breytileg eftir stærð Monolith skáps. 

Innbyggður frystiskápur með klakavél (b:91cm)- Monolith

Rúmgóðar hurðarhillur

Nægt rými er til staðar í fáguðum hurðarhillum frystiskápsins, en hillurnar eru bæði gagnsæjar og hæðarstillanlegar til þægindaauka. Sérstakt loftleiðslukerfi frystiskápsins tryggir stöðugt flæði af köldu lofti. Hitastig helst jafnt og stöðugt í öllu frystirýminu og eru geymsluskilyrði matvæla þar af leiðandi þau sömu í hurðarhillum og annars staðar í frystiskápnum. Notaðu hurðarhillurnar til þess að geyma lítil eða meðalstór matvæli og losaðu þannig um pláss í skápnum sjálfum til þess að geyma rúmfrekari matvæli.

Innbyggður frystiskápur með klakavél - Premium

SuperFrost hraðfrysting

Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta sem hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Hraðfrysting varðveitir ferskleika, innsiglar bragð og viðheldur vítamínum og steinefnum í matvælum.