
Innbyggður frystiskápur án framhliðar
Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur vinstri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

IceTower klakavél
Klakarnir munu aldrei klárast í veislunni. IceTower klakavélin sem rúmar 5,7 kg af klökum mun sjá til þess. Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Klakaskúffan situr ásamt annarri skúffu á útdraganlegum brautum sem gerir þér kleift að nálgast klakana á auðveldan hátt. IceTower klakavélin er beintengd sem þýðir að vatnið kemur beint úr krananum. Klakaframleiðslu er hægt að auka með MaxIce stillingu og framleiða allt að 1,5 kg af klökum á sólarhring.

Touch & Swipe snertiskjár
TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðfrystingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

SoftSystem mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað.

Tilkomumikil LED lýsing
Innihald frystirýmis er vel upplýst með LED ljósi sem er staðsett beint fyrir ofan frystiskúffurnar. Þegar skúffurnar eru dregnar út eru matvælin vel sýnileg og auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. Auk þess er skápurinn með LED lýsingu í klakavélinni sem setur klakana í sviðsljósið og gerir þá enn svalari.

Frystiskúffur á útdraganlegum brautum
Skúffur í frystirými sitja á hálf-útdraganlegum brautum. Þær eru gagnsæjar og matvæli sem í þeim eru geymd því vel sýnileg. Þægilegt aðgengi með lágmarks áreynslu er þannig tryggt, jafnvel þegar skúffurnar eru alveg fullhlaðnar.

Sveigjanlegt frystirými
Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Bakki í frystiskúffu
Frystibakkinn hentar einstaklega vel til þess að frysta viðkvæm matvæli eins og ávexti, ber og jurtir. Með því að dreifa úr matvælunum á bakkanum er hægt að frysta þau hratt og án þess að þau kremjist. Þannig er tryggt að matvælin haldist fersk og brakandi eftir að þau hafa verið afþýdd. Auðvelt er að koma bakkanum fyrir í frystiskúffunni og fjarlægja hann aftur.

Einstök þægindi
NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Hitastýring er elektrónísk og skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
