Fara í meginmál

Vörunúmer: ICBBI5122

Liebherr

Innbyggður kæli- & frystiskápur með BioFresh - Plus

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæli- & frystiskápur til innbyggingar úr Plus línu Liebherr. Skápurinn er með aðskildum kæli- og frystikerfum, LED lýsingu, mjúklokun og BioFresh skúffum sem tryggja lengri endingu ferskmetis.

714.990 kr.

Sérpöntun

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél - Plus

Innbyggður kæli- og frystiskápur án framhliðar 

Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

BioFresh skúffur 

BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. DrySafe skúffa hentar sérstaklega vel til þess að geyma kjöt, fisk og mjólkurvörur á meðan hátt rakastig í HydroSafe skúffu kemur í veg fyrir að ávextir og grænmeti þorni upp. BioFresh skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

Innbyggður kæliskápur - Pure

Snertiskjár 

Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. 

Innbyggður kæliskápur - Pure

LED lýsing 

Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Ljósið er staðsett fyrir miðju, fyrir framan glerhillurnar og tryggir þannig góða lýsingu niður allan skápinn. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Innbyggður kæliskápur - Pure

Stílhreint innanrými 

Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista á fremri brún. Ein hillan kemur í tveimur pörtum, hægt er að renna öðrum hluta hennar undir hinn og mynda grynnri hillu. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og fallegur ryðfrír listi er á plastslánum sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Kæli- & frystiskápur með BioFresh - Premium

Nytsamleg flöskuhilla

Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu, nýjung sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

nytsamleg flöskuhilla

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Premium

Sveigjanlegt frystirými 

Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Innbyggður kæli- & frystiskápur - Plus

Einstök þægindi 

Skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæðin óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skápinn með því að geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. SmartFrost tæknin dregur verulega úr frostuppsöfnun í innvolsi og á frosnum matvælum. Rafmagnsnotkun skápsins minnkar þar af leiðandi og einnig sá tími sem fer í að afþíða frystinn. Auk alls sem er ofantalið er skápurinn einstaklega hljóðlátur.