
Innbyggður MONOLITH vínkæliskápur án framhliðar
Mögulegt er að setja innréttingarframhlið framan á vínkæliskápinn og mynda fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn varpar fallegu LED ljósi á vínflöskurnar og er með vandaðri glerhurð sem veitir bestu mögulegu yfirsýn yfir þær. Fullkomin geymsluskilyrði auk vandaðrar og fallegrar framsetningar sameinast í innbyggðum vínkæliskápum frá Liebherr.

Vínkæliskápur með aðskildum kælisvæðum
Öll bragð- og ilmefni víns njóta sín best ef vínið er borið fram við rétt hitastig. Kjörhitastig víns er mismunandi á milli víngerða, getur farið eftir smekk hvers og eins, verið mismunandi eftir því hvers kyns matur er paraður með víninu, og þess vegna farið eftir því hvenær árs vínsins er neytt. Rauðvíns er alla jafna neytt við hærra hitastig en hvítvíns; og bragð- og ilmefni freyðivíns njóta sín best þegar það er vel kælt. Í vínkæliskáp með aðskildum kælisvæðum frá Liebherr, getur flaska af kampavíni verið tilbúin ef óvænt á að skála og á sama tíma getur góð rauðvínsflaska verið tilbúin við kjörhitastig til neyslu fyrir óvænta gesti.

LED lýsing
Falleg LED lýsing er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir jafna birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma. Lýsingin er auk þess dimmanleg og gefur afskaplega fallega umhverfislýsingu.

Mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðinni, dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað og tryggir þannig að hurðin lokist varlega.

Útdraganlegar hillur á brautum
Vínkæliskápurinn er með gegnheilum viðarhillum sem sitja á útdraganlegum brautum. Hillurnar henta einstaklega vel til þess að geyma Bordeaux flöskur á öruggan hátt, veita bæði góða yfirsýn og þægilegt aðgengi. Hillurnar eru handgerðar úr ómeðhöndluðum við og mögulegt er að smella á þær merkimiðum sem veita þér skýra yfirsýn yfir vínsafnið þitt.

Nákvæm hitastýring
Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hitaskilyrði. Kjörhitastig fyrir þroska víns er það sama hjá öllum víntegundum, hvort sem um ræðir rauðvín eða hvítvín, og liggur á milli +10°C og +12°C. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugara hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis sveiflist mjög mikið. Að auki er þéttikanntur á milli kælisvæða sem tryggir að hvert einasta kælisvæði er með fullkomlega aðskildri og sjálfstæðri hitastjórnun.

Fullkomið rakastig
Rétt rakastig er lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Í vínkæliskápnum eru fullkomin rakaskilyrði, það er 50%-80%, sem tryggir góða öndun gegnum rakann korktappa víns á meðan þroskun þess fer fram.

Lágmarks titringur og UV- vörn
Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Virkur kolafilter
Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.
