
Glæsilegur kæli- og frystiskápur með franskri opnun
Skápurinn er með SmartSteel yfirborði og passar virkilega vel inn í fjölbreyttar gerðir eldhúsa. Lárétt pússun dregur ryðfría stálið fram, gefur skápnum silkigljáa og þægilega viðkomu. Innfelld handföng eru á bæði hurðum og skúffum sem passar fullkomlega inn í nútímaleg, höldulaus eldhús. Kæli- og frystiskápurinn er mikið augnayndi hvar sem hann stendur.

Vatns- & klakavél í hurð
Einfaldlega hressandi: Vatns- og klakavél skápsins er staðsett framan á hurðinni og þar getur þú nálgast ferskt, kalt vatn, fallega tæra ísmola og mulinn ís hvenær sem er. Framboðið er nægt, þannig að þú getur jafnvel borið fram ískalda drykki í veislum sem koma til með stuttum fyrirvara. Einnig er mögulegt er að stilla hversu miklu vatni vatnsvélin skammtar í valið ílát fyrir aukin þægindi.

BioFresh
BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. BioFresh skúffurnar eru með loftþéttu loki og er hægt að nota þær annað hvort fyrir kjöt, fisk og mjólkurvöru eða ávexti og grænmeti. Lokaðu loftþétta lokinu á BioFresh skúffunum ef þú vilt geyma ávexti og grænmeti í þeim, þetta eykur rakastigið í skúffunum og tryggir ferskleika í lengri tíma. Kjöt og fiskur geymast best í skúffunum við lægra rakastig þegar lokið er í opinni stöðu. BioFresh skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

VarioTemp
Mjög mikið svigrúm við geymslu matvæla: þökk sé VarioTemp getur þú stillt hitastig efri frystiskúffu skápsins á nákvæman hátt og notað rýmið með mismunandi hætti. Auk þess að geta notað rýmið sem venjulegan frysti á hitasviðinu -18°C til -10°C, er mögulegt að stilla hitasviðið á bilið -2°C til +5°C og nota t.d. undir drykki og forrétti ef halda á veislur. Breytilegt hitastig – allt eftir hentugleika.

Útdraganlegar frystiskúffur
Mjög auðvelt er að opna frystiskúffurnar. Þær sitja á útraganlegum brautum sem tryggja bæði mjúka og jafna hreyfingu án minnstu vandræða. Það skiptir ekki máli hvar þú grípur skúffuna til að opna hana – til vinstri, til hægri eða fyrir miðju. Skúffurnar lokast líka alveg jafn mjúklega og áreynslulaust.

Touch & Swipe snertiskjár
TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Veldu einfaldlega aðgerðir eins og SuperCool á litaskjánum með því að snerta og swipe-a. Hitastigi er stjórnað alveg jafn auðveldlega. Og ef þú ert ekki að nota skjáinn þá sýnir hann raunhitastig skápsins öllum stundum.

LED lýsing
Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. LED ljós er einnig staðsett fyrir ofan BioFresh skúffur sem skilar góðri lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Innihald frystirýmis er einnig vel upplýst með LED ljósi beint fyrir ofan frystiskúffur sem lýsir niður í þær. Þessi alltumlykjandi lýsing í skápnum tryggir að matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum.

Stílhreint innanrými
Fágaður panell úr ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekur bakhlið skápsins. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með satín áferð og fallegir listar með ryðfríu útliti prýða fremri brún þeirra. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og slár sem varna því að matvara detti út úr þeim með fallegum lista með ryðfríu útliti. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur bæði í skáp og hurð, jafnvel þegar matvæli eru til staðar, og koma þannig fyrir misstórum hlutum fyrir á öruggan og aðgengilegan hátt. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

BLU Performance tækni
Kælitækni BLU Performance skápanna hefur allri verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri vinnuvistfræði frystirýmis og hljóðlátari skápum.

Hentugt skilrúm í hurðarhillu
Mögulegt er að setja skilrúm í hurðarhillu skápsins sem er einstaklega hentugt. Skilrúmið skiptir hillunni upp og er fullkomið fyrir t.d. flöskur, snyrtivörur og litlar dósir. Hægt er að setja skilrúmið auðveldlega í hvaða hurðarhillu sem er fyrir örugga og þægilega geymslu.

Hurðarhilla sem hægt er að halla
Mjóar hurðarhillur eru staðsettar á hurðum skápsins annars vegar fyrir framan klakavél og hins vegar fyrir framan BioFresh skúffu. Þær henta einstaklega vel til þess að geyma minni matvæli eins og túpur eða litlar flöskur. Mögulegt er að halla þessum hurðarhillum fram sem gerir þér kleift að nálgast innihaldið á auðveldan hátt.

Nytsamleg flöskuhilla
Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
