
Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum
Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er.

Svalasti litli snarl- og drykkjakælir sem til er
Hitasvið FAB 10H drykkjakælisins er fullkomið til að geyma t.d. gosdrykki, íste, djús, bjór, freyðivín og rósavín. Auk þess að kæla drykki, hentar skápurinn einstaklega vel til þess að geyma vörur í neytendaumbúðum og snarl t.d. osta og súkkulaði. Skápurinn er með útdraganlegri flöskuskúffu fyrir allt að 10 flöskur og tveim færanlegum flöskurekka úr krómi fyrir samtals 4 flöskur. Dósir er síðan hægt að skorða af á þægilegan hátt á tveimur færanlegum hillum úr hertu öryggisgleri. Þrjár hillur eru í hurðinni; ein fyrir stórar flöskur og tvær aðrar fyrir minni drykki eða snarl. Auðvelt er að aðlaga innvols skápsins að persónulegum þörfum og mögulegt að koma töluverðu magni drykkja fyrir í rúmgóðu 135 lítra innanrýminu.

Kæliskápar fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun
FAB 10H er í brennidepli í því rými sem hann stendur og hentar einstaklega vel þegar setja á punktinn yfir i-ið í innanhússhönnun. Meira geymslurými er til staðar í FAB 10H drykkjakælinum en hefðbundnum drykkjakælum, kælitækni skápsins tryggir mjög lága orkunotkun, hann er hljóðlátur og ekki skemmir auðkennandi retro útlitið fyrir. Skápurinn er þar af leiðandi fullkomin lausn inn í vinnuumhverfi eins og fundarherbergi og skrifstofur, eða í raun inn í hvaða rými sem er sem þarfnast snarl- og drykkjakælis. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.
