Fara í meginmál

Vörunúmer: FAB5RCR6

Smeg

Kæliskápur fyrir drykki (mini) - 50's Retro Style

FAB skápar úr Retro 50´s línu Smeg heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun. Þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.

FAB 5 er svalasti litli snarl- og drykkjakælir sem til er, einungis um það bil 73 cm á hæð og 40 cm á breidd. Hurðarlamir eru staðsettar hægra megin og skápurinn þar af leiðandi með hægri opnun.

239.990 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur fyrir drykki (mini) - 50's Retro Style

Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum 

Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er. 

Kæliskápur fyrir drykki (mini) - 50's Retro Style

Svalasti litli snarl- og drykkjakælir sem til er

Hitasvið FAB 5 drykkjakælisins liggur á milli 8 og 14°C sem er fullkomið geymsluhitastig fyrir gosdrykki, íste, djús, bjór, freyðivín og rósavín. Skápurinn hentar þar af leiðandi einstaklega vel til þess að kæla drykki, vörur í neytendaumbúðum og snarl t.d. osta og súkkulaði. Allt eftirlætis fæðuhópa skemmtanaglaðs fólks. Innanrými skápsins er 34 lítrar og auðvelt er að aðlaga það að persónulegum geymsluþörfum. Tvær færanlegar hillur úr hertu öryggisgleri eru í skápnum og tvær hillur í hurðinni, önnur hentar vel fyrir stórar flöskur en hin fyrir snarl.

Kæliskápur fyrir drykki (mini) - 50's Retro Style

Kæliskápar fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun 

Fegurðin við FAB 5 er að þú kemur honum fyrir nánast hvar sem er. Undir skrifborði, inni í bókahillu, í horninu á stofunni, við vinnuaðstöðuna á heimilinu, í svefnherberginu... Möguleikarnir eru endalausir. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.