Fara í meginmál

Vörunúmer: FAB10RRD6

Smeg

Kæliskápur með frystihólfi - 50's Retro Style

FAB skápar úr Retro 50´s línu Smeg heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun. Þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.

FAB 10 er lítill kæliskápur með frystihólfi, um það bil 97 cm á hæð og 54,5 cm á breidd. Hurðarlamir eru staðsettar hægra megin og skápurinn þar af leiðandi með hægri opnun.

219.990 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur fyrir drykki - 50's Retro Style

Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum 

Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er. 

Kæliskápur með frystihólfi - 50's Retro Style

Lítill 50´s kæliskápur með sterkan persónuleika

FAB 10 er fullkominn inn í litlar íbúðir eða skrifstofurými og hentar til dæmis einstaklega vel fyrir fólk sem býr eitt. Þrátt fyrir að vera lítill og nettur, býður skápurinn upp á þá eiginleika sem búast má við af FAB kæliskáp: Hann er bæði orkunýtinn og hljóðlátur. Tvær hillur eru í skápnum, aðra er hægt að færa en hin lokar gagnsærri grænmetis- og ávaxtaskúffu. Lítið 4 stjörnu frystihólf er til staðar og hurðarhillur sem henta vel fyrir flöskur og dósir.

Kæliskápur með frystihólfi - 50's Retro Style

Kæliskápur fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun 

50´s Retro skápar eru ekki aðeins hagnýtir, heldur eru þeir líka einstaklega fallegir. Innanrými FAB 10 er glæsilegt framhald af ytra byrgði skápsins og endurspegla fágaðir króm og silfur listar klassískt retro 50´s útlit. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.