
Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum
Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er.

50´s skápur gæddur nýjustu tækni
FAB 28 skápurinn er með nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem viðheldur stöðugu hitastigi í innanrými og blástursviftu sem tryggir jafna hringrásandi dreifingu kælingar. Auðvelt er að fullnýta skápinn þar af leiðandi, geyma matvæli hvar sem er inni í honum og kæla fersk matvæli allt að 50% hraðar en gerist í kæliskáp án blástursviftu. Skápurinn er einnig með 0°C skúffu sem hentar fullkomlega til þess að varðveita viðkvæm matvæli eins og fisk, osta og kjöt. Bestu geymsluaðstæður fyrir ferskmeti, eins og ávexti, grænmeti og salat eru síðan í rakastýrðri grænmetisskúffu. Frosin matvæli má að lokum geyma í þægilegu 4 stjörnu frystihólfi.

Kæliskápur fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun
Umtalsvert geymslurými er til staðar í FAB 28 skápnum og auðvelt að færa til hillur í honum til þess að aðlaga hann að persónulegum geymsluþörfum. Kælirýmið er vel upplýst með björtum LED súlum í sitthvorri hlið skápsins. Lýsingin tryggir að matvælin séu vel sýnileg hvar sem þau eru staðsett, sem auðveldar leit í fullhlöðnum skápnum. 50´s Retro skápar eru ekki aðeins hagnýtir, heldur eru þeir líka einstaklega fallegir. Nýtt stílfagurt innvols prýðir FAB 28 og er það fullkomið framhald af ytra byrði skápsins. Hárfínar retro sveigjur og fágaðar króm áherslur einkenna innvolsið og endurspegla klassískt retro 50´s útlit. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.
