Fara í meginmál

Vörunúmer: UIKP1554

Liebherr

Kæliskápur með frystihólfi til innbyggingar undir borðplötu - Premium

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæliskápur með frystihólfi til innbyggðingar undir borðplötu, úr Premium línu Liebherr. Skápurinn er með frystihólfi, LED lýsingu og mjúklokun.

359.990 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur með frystihólfi til innbyggingar undir borðplötu - Premium

Undirbyggður kæliskápur án framhliðar

Samræmt heildarútlit fæst í eldhúsinu með því að undirbyggja skápinn undir borðplötu og bakvið innréttingarframhlið. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið skápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu. Skápurinn er með VarioBase sökkli sem gerir það að verkum að hægt er að aðlaga hann að innréttingunni bæði hvað varðar hæð og dýpt. Öndun fer fram í gegnum sökkulinn, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna.

Kæliskápur - Comfort

Gagnsæjar grænmetisskúffur

Nægt pláss er fyrir geymslu og skipulag ávaxta og grænmetis í skápnum. Grænmetis- og ávaxtaskúffurnar eru gagnsæjar og auk þess auðveldar í þrifum.

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi - Comfort

4 stjörnu frystihólf

Fersk matvæli er hægt að frysta og geyma í langan tíma í 4 stjörnu frystihólfi. Hitastigi frystihólfsins er haldið stöðugu við -18°C eða minna og þar af leiðandi tryggt að matvælin viðhaldi öllum sínum vítamínum og steinefnum.

Kæliskápur - Comfort

LED lýsing 

Skápurinn er með LED lýsingu. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og tryggir þar af leiðandi bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis. Auk þess er LED lýsingin sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. Hurðin lokast af sjálfsdáðun ef opnun er minni en u.þ.b. 35° hjá frístandandi skápum eða minni en u.þ.b. 30° hjá innbyggðum skápum.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Premium

SuperCool hraðkæling

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.