Fara í meginmál

Vörunúmer: FAB50RRD5

Smeg

Kæliskápur með toppfrysti - 50's Retro Style

FAB skápar úr Retro 50´s línu Smeg heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun. Þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.

FAB 50 er mjög rúmgóður, 187 cm á hæð og 80 cm á breidd. Skápurinn er með LED lýsingu, NoFrost frystihólfi sem þarf ekki að afþýða og LifePlus 0°C skúffu sem hentar fullkomlega til þess að varðveita viðkvæm matvæli. Hurðarlamir eru staðsettar hægra megin og skápurinn þar af leiðandi með hægri opnun. 

589.990 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur með toppfrysti - 50's Retro Style

Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum 

Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er. 

Kæliskápur með toppfrysti - 50's Retro Style

50´s skápur gæddur nýjustu tækni 

FAB 50 skápurinn er með fallegu innfelldu LED stjórnborði sem gerir þér kleift að stilla stafrænt hitastig í kælirými og frystihólfi. Nákvæm elektrónísk hitastýring viðheldur stöðugu hitastigi í innanrými og blástursvifta tryggir jafna hringrásandi dreifingu kælingar. Auðvelt er að fullnýta skápinn þar af leiðandi, geyma matvæli hvar sem er inni í honum og kæla fersk matvæli allt að 50% hraðar en gerist í kæliskáp án blástursviftu. Active Ion kerfi sér til þess að fullkomin loftgæði séu í skápnum, með því að hlutleysa bakteríur og önnur óhreinindi sem geta orsakað óæskilega lykt frá matvælum. Skápurinn er einnig með LifePlus 0°C skúffu sem hentar fullkomlega til þess að varðveita viðkvæm matvæli eins og fisk, osta og kjöt. Bestu geymsluaðstæður fyrir ferskmeti, eins og ávexti, grænmeti og salat eru síðan í rakastýrðri grænmetisskúffu. Auk alls þessa tryggir NoFrost kælitækni langtíma ferskleika matvæla í 4 stjörnu frystihólfinu, hraðfrystihólf gerir þér kleift að frysta þiðinn mat án þess að draga frost úr öðrum vörum og handvirk klakavél sér til þess að nægt framboð ferskra og brakandi klaka er alltaf mögulegt. 

Kæliskápur með toppfrysti - 50's Retro Style

Rúmgóður kæliskápar fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun 

Mögulegt er að koma miklu magni af ferskmeti og frosnum matvælum fyrir í FAB 50 kæliskápnum. Hann er 80 cm breiður og því einstaklega rúmgóður. Auk þess er auðvelt að færa til hillur í skápnum og aðlaga hann að persónulegum geymsluþörfum. Kælirýmið er vel upplýst með björtum LED súlum í sitthvorri hlið skápsins og LED ljósi er í toppi frystihólfs. Lýsingin tryggir að matvælin séu vel sýnileg hvar sem þau eru staðsett, sem auðveldar leit í fullhlöðnum skápnum. 50´s Retro skápar eru ekki aðeins hagnýtir, heldur eru þeir líka einstaklega fallegir. Innanrými FAB 50 er glæsilegt framhald af ytra byrði skápsins og endurspegla fágaðar króm áherslur klassískt retro 50´s útlit. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.