Fara í meginmál

Vörunúmer: RSDCI1620

Liebherr

Kæliskápur - Plus

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Lítill og nettur 85 cm hár kæliskápur úr Plus línu Liebherr. Skápurinn er með LED lýsingu og EasyFresh skúffu sem tryggja lengri endingu grænmetis og ávaxta.

234.990 kr.

Ekki til á lager

Kæliskápur - Plus

Frístandandi kæliskápur

Skápurinn er frístandandi og sómir sér vel stakur. Klassískt ryðfrítt útlit gefur skápnum fágað og glæsilegt yfirbragð. Handfangið er sterkbyggt, með innbyggðu opnunargangveki og gerir þér kleift að opna hurðina á þægilegan og áreynslulausan máta. Toppplötu skápsins er hægt að nota sem framlenginu á vinnuborði og er yfirborðið harðgert og endingargott. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Kæliskápur - Plus

EasyFresh skúffa

EasyFresh er skúffa í kælirými með stillanlegu loki. Mögulegt er að stjórna rakastigi í skúffunni með lokinu og þar með lengja endingu grænmetis og ávaxta. Skúffan er loftþétt þegar lok er í lokaðri stöðu sem, ásamt ferskmetinu sem þar er geymt, eykur rakastigið í skúffunni. Rakanum er síðan hleypt út með því að opna lokið.

Kæliskápur - Plus

Minimal UI – Snertitakki og LED lýsing

Skápnum er stjórnað með einföldum Minimal UI snertitakka. Mögulegt er að stilla hitastig skápsins á 3, 5, 7, eða 9°C með einfaldri snertingu. LED hliðarljós er við hlið snertitakkans, staðsett fyrir framan glerhillurnar og lýsir innanrýmið þar af leiðandi upp á jafnan og fallegan hátt. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Kæliskápur - Plus

Glæsilegt innanrými 

Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með satín áferð og fallegir listar með ryðfríu útliti prýða fremri brún þeirra. Ein hillan kemur í tveimur pörtum, hægt er að renna öðrum hluta hennar undir hinn og mynda grynnri hillu og geyma hærri hluti eins og t.d karöflu á þægilegan hátt. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og slár sem varna því að matvara detti út úr þeim með fallegum lista með ryðfríu útliti. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur bæði í skáp og hurð, jafnvel þegar matvæli eru til staðar, og koma þannig fyrir misstórum hlutum fyrir á öruggan og aðgengilegan hátt. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Kæliskápur - Plus

Flöskuhilla fyrir þrjár flöskur

Skápurinn er með lausri plasthillu sem rúmar þrjár flöskur. Hægt er að staðsetja flöskuhilluna á hvaða hillu sem er í skápnum, hvort sem henni er snúið fram eða til hliðar. Sveigjanleg notkun fyrir auka flöskur.

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi - Pure

SuperCool hraðkæling

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.