Fara í meginmál

Vörunúmer: URD365I

Liebherr

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæliskápur til innbyggðingar undir borðplötu, úr Prime línu Liebherr. Skápurinn er með LED lýsingu, þægilegum snertiskjá og mjúklokun.

349.990 kr.

Sérpöntun

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Undirbyggður kæliskápur án framhliðar

Samræmt heildarútlit fæst í eldhúsinu með því að undirbyggja skápinn undir borðplötu og bak við innréttingarframhlið. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið skápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu. Skápurinn er með VarioBase sökkli sem gerir það að verkum að hægt er að aðlaga hann að innréttingunni bæði hvað varðar hæð og dýpt. Öndun fer fram í gegnum sökkulinn, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

EasyFresh skúffa

EasyFresh er skúffa í kælirými með stillanlegu loki. Mögulegt er að stjórna rakastigi í skúffunni með lokinu og þar með lengja endingu grænmetis og ávaxta. Skúffan er loftþétt þegar lok er í lokaðri stöðu sem, ásamt ferskmetinu sem þar er geymt, eykur rakastigið í skúffunni. Rakanum er síðan hleypt út með því að opna lokið.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Touch & Swipe snertiskjár

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Veldu einfaldlega aðgerðir eins og SuperCool á litaskjánum með því að snerta og swipe-a. Hitastigi er stjórnað alveg jafn auðveldlega. Og ef þú ert ekki að nota skjáinn þá sýnir hann raunhitastig skápsins öllum stundum.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Glæsilegt innanrými 

Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með satín áferð og fallegir listar með ryðfríu útliti prýða fremri brún þeirra. Ein hillan kemur í tveimur pörtum, hægt er að renna öðrum hluta hennar undir hinn og mynda grynnri hillu og geyma hærri hluti eins og t.d karöflu á þægilegan hátt. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og slár sem varna því að matvara detti út úr þeim með fallegum lista með ryðfríu útliti. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur bæði í skáp og hurð, jafnvel þegar matvæli eru til staðar, og koma þannig fyrir misstórum hlutum fyrir á öruggan og aðgengilegan hátt. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Universalbox - skúffa neðst í skáp

Skúffan sem staðsett er neðst í skápnum er fullkominn staður til þess að geyma smáar matvörur, til dæmis túpur eða litlar dósir, á öruggan og sýnilegan hátt. Gagnsæ skúffan býður ekki aðeins upp á gott rými heldur er hún einnig mjög aðgengileg. Sterkt yfirborðið er líka sérstaklega auðvelt í þrifum sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

LED lýsing 

Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Ljósið er staðsett fyrir miðju, fyrir framan glerhillurnar og tryggir þannig góða lýsingu niður allan skápinn. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. 

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi - Pure

SuperCool hraðkæling

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.