
Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum
Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

Raðeining með High-Light hellum
Raðeiningin er með misstórum High-Light hellum fyrir fjölbreytta eldamennsku sem hentar sérstaklega vel þar sem rými er af skornum skammti. Keramik glerið er bæði sterkbyggt, auðvelt í þrifum, þolir hita yfir 800°C og er auk þess vatns- og höggþolið. Eftir að slökkt hefur verið á helluborðinu sýna gaumljós hvaða hellur eru ennþá heitar.
