Fara í meginmál

Vörunúmer: 18371F

Magimix

Matvinnsluvél - Compact 3200 XL

Fyrirferðalítil og fjölhæf matvinnsluvél frá Magimix. Matvinnsluvélin er einstaklega fjölhæf; sneiðir, rífur, sker, blandar, þeytir og hnoðar. Skálarnar eru þrjár og passa hver ofan í aðra, þannig er hægt að vinna með mismikið magn en vélin tekur eftir sem áður minna skápapláss. Fæðunaropið er extra stórt og er vélin einföld og þægileg í notkun. Matvinnsluvélin er afkastamikil og sterkbyggð með iðnaðarmótor og skálum úr polycarbonate.


59.990 kr.

Matvinnsluvél - Compact 3200 XL

Fjölhæf 

Magimix matvinnsluvél CS3200 XL er mjög fjölhæf og getur komið í staðin fyrir allt að fimm önnur smátæki í eldhúsinu. Vélin er fullkomin til dæmis til þess að rífa gulrætur, sneiða gúrku og tómata, skera kjöt, blanda súpur og sósur, búa til smoothie og mjólkurhristinga, hnoða brauð og pizzadeig, þeyta eggjahvítur og rjóma. Magimix matvinnsluvélar eru frábær viðbót í hvaða eldhús sem er.

Matvinnsluvél - Cuisine System 5200 XL Premium

Einföld í notkun

Notkun matvinnsluvélarinnar er afskaplega einföld. Allri virkni er stjórnað með þremur tökkum STOP, AUTO og PULSE. Óþarfi er að stilla inn hraða mótors vegna þess að hann aðlagar sjálfkrafa hraða sinn að því sem er í skálinni. Matreiðslubók með yfir 100 uppskriftum fylgir vélinni og veitir margvíslegar hugmyndir um dásamlega rétti, allt frá girnilegum kökum að þriggja rétta kvöldmáltíðum. Allir fylgihlutir mega fara í uppþvottavél og eru þeir geymdir á öruggum stað í handhægu boxi sem fylgir með matvinnsluvélinni.

Matvinnsluvél - Cuisine System 4200 XL

3 in 1

Matvinnsluvélin er með þremur sjálfstæðum skálum úr polycarbonate sem gefur möguleika á því að vinna nokkur mismunandi verk með keðjuverkandi hætti. Stóra skálin er fullkomin fyrir mikið magn af hráefnum og í hana passar fjöldi fylgihluta. Miðskálin er notuð með rifjárnum til þess að skera og rífa hráefni. Minnsta skálin með sínum litla hníf hentar fullkomlega fyrir lítið magn af hráefnum.

Matvinnsluvél - Cuisine System 5200 XL Premium

Sterkbyggð, öflug og hljóðlát

Matvinnsluvélin er framleidd í Frakklandi. Sterkur iðnaðarmótorinn er með 30 ára ábyrgð frá framleiðanda* og aðlagar sjálfur hraða sinn að verkinu. Matvinnsluvélin er öflug og orkunýtin, auk þess er hún mjög hljóðlát og hefur fengið Quiet Mark verðlaun því til staðfestingar. Fylgihlutir eru auk þess allir framleiddir í Frakklandi, meðal annars sterkbyggðir Sabatier hnífar frá Thiers. Magimix matvinnsluvélar eru sterkbyggðar fyrir lengri endingu.

*Ábyrgð miðast við venjulega heimilisnotkun