
Nokkar einfaldar reglur sem þarf að hafa í huga þegar hellt er upp á kaffi í mokkakönnu
- Mundu að setja kalt vatn í neðsta hluta mokkakönnunnar og fylla aðeins upp að ventlinum
- Bættu möluðu kaffi í filterinn en gættu þess að pressa því ekki niður
- Fjarlægðu mokkakönnuna af hitanum þegar kaffið byrjar að gutla
- Opnaðu lokið til að hleypa gufunni út
- Helltu kaffinu í fallegan bolla og njóttu dásamlegs bragðs og ilms af nýuppáhelltu kaffi!
