Monolith Side-By-Side sett
Þegar tveir MONOLITH skápar eru settir upp hlið við hlið og bil á milli þeirra er minna en 102mm þá er þörf á Side-By-Side settinu. Settið inniheldur hitaplötu á milli skápanna sem kemur í veg fyrir uppsöfnun á raka, stálfestingar og skrúfur. Settið er fest á hægri hlið vinstri skáps. Einnig fylgir með listi til þess að loka bilinu á milli skápanna (6-8 mm). Ekki er þörf á að tengja Side-By-Side settið beint í rafmangsinnstungu því það er hægt að tengja settið beint í MONOLITH kælana að aftanverðu.
Sérpöntun
Fá tilboð