
Sveigjanleg eldunarsvæði
Gagnlegt fyrir hversdags notkun
Lögun og stærð eldunarsvæða á Miele helluborðum er mismunandi, sem gerir þér kleift að nota potta og pönnur af mismunandi stærðum og gerðum. Mörg helluborð eru auk þess með stækkanleg eldunarsvæði.

Eiginleikar sem auka þægindi notanda
Aukin þægindi
Aukin þægindi við eldun: Mögulegt er að skreppa örstutt frá eldamennskunni með því að ýta á "Pásu" stillingu, en þá er afl allra eldunarsvæða minnkað niður í aflstillingu 1. Einnig er mögulegt að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér að þeim tíma liðnum. Stillingin "Minni"tryggir að ef óvart er slökkt á helluborðinu eru stillingarnar þínar vistaðar í 10 sekúndur.
-min-2e87ff0e-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
Sjálfvirk upphitun
Sparar meira en orku
Þessi sjálfvirka stilling lækkar hitann frá stilltu afli í upphafi (fyrir hraða upphitun) niður í lægra hitastig (fyrir áframhaldandi eldun). Á þennan hátt gleymist ekki að lækka hitann á réttum tíma og maturinn brennur ekki við.

Öryggisvirkni
Fyrir aukið öryggi og fullvissu
Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.
-min-f5d94f29-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
Yfirhitavörn
Fyrir langan endingartíma tækis
Hvert eldunarsvæði er með yfirhitavörn. Vörnin slekkur á hitun eldunarsvæða ef álag verður of mikið og áður en keramikglerið eða aðrir hlutar helluborðsins ofhitna. Helluborðið slekkur líka sjálfkrafa á sér ef það er einhver hlutur eða vökvi á stjórnborðinu
