
Ekkert brennur við eða sýður upp úr með M Sense pottum og pönnum
M Sense tækni
M Sense pottar og pönnur voru hannaðir til að auðvelda þér lífið og tryggja að ekkert brenni við þá eða sjóði upp úr. Til dæmis er mögulegt að elda pasta í potti með lokinu á, án þess að það sjóði upp úr. Einnig er hægt að velja úr fyrir fram skilgreindum hjálpar prógrömmum sem þú getur valið beint á pönnunum eða pottunum sjálfum. Þökk sé samstillingu við helluborðið, er ekki þörf á frekari stillingum.

Matt og slitsterkt yfirborð
MattFinish áferð
MattFinish áferð helluborðsins gefur eldhúsinu ekki aðeins glæsilegt útlit, heldur er hún líka sérstaklega slitsterk og þolin gagnvart rispum og fingraförum. Nútímalegt útlit möttu svörtu áferðarinnar passar fullkomlega við hönnun nútímaeldhúsa og fer fram úr öllum væntingum hvað varðar virkni. Þannig lítur eldhúsið út fyrir að vera hreint, jafnvel þegar þú ert að búa til eitthvað flóknara.

Sveigjanleiki fyrir allar aðstæður sem koma upp við eldun
Valfrjálst elduarsvæði
Njóttu hámarks frelsis við matreiðslu. Hægt er að nota allt yfirborð helluborðsins til eldunar án fastra eldunarsvæða, sem gerir notkun þess einstaklega sveigjanlega. Hægt er að staðsetja allt að sex potta, pönnur og ofnföt sem henta fyrir spantækni hvar sem er á helluborðinu. Helluborð sem eru með valfrjálsu eldunarsvæði eru fáanleg í ýmsum breiddum.

Snjalltækni sem gerir vinnuna auðveldari
Snjöll skynjun potta og panna
Snjöll skynjun potta og panna gerir það að verkum að stjórnborð helluborðsins er aðeins sýnilegt þegar pottur eða panna er á helluborðinu. Þessi virkni gefur helluborðinu stílhreint og glæsilegt útlit þegar það er ekki í notkun. Þegar þú færir potta og pönnur til á helluborðinu, fylgir stjórnborðið þessum hreyfingum, sem gerir notkun bæði auðvelda og sveigjanlega. Að auki skynjar helluborðið stærð potta og panna sem stuðlar að meiri orkunýtni.

Eldaðu á enn þægilegri hátt þökk sé viðbótar stillingum
Eiginleikar sem auka þægindi notanda
Dyrabjallan hringir á meðan þú ert að elda kvöldmatinn? Notaðu Stop&Go “Pásu” stillingu til að lækka allar hellur niður í aflstig 1 og yfirgefðu helluborðið í stutta stund með góðri samvisku. “Hella slekkur á sér sjálfvirkt” er stilling sem gerir þér kleift að stilla í hversu langan tíma eldunarsvæði á að vera í gangi og láta helluna slökkva á sér sjálfkrafa að þeim tíma liðnum, og “Halda heitu” stilling tryggir að maturinn haldist við fullkomið framreiðslu hitastig. Notaðu stillinguna “Minni” sem vistar allar stillingar í 10 sekúndur, ef óvart slokknar á helluborðinu.

Stjórnaðu helluborðinu þínu á einfaldan og snjallan hátt
MultiSlide
Matreiðsla er enn auðveldari með snjöllum MultiSlide stjórntækjum. Með stjórntækjunum getur þú séð allar afl- og tímastillingar fyrir hvern pott og pönnu á augabragði. Hverjum og einum potti og pönnu er stjórnað með sínum eigin talnasleða.

Eldaðu eins og fagmaður
Professional stilling
Professional stilling gerir þér kleift að skipta helluborðinu upp í þrjú svæði og elda með mismunandi aflstillingum. Notaðu hátt aflstig til þess að steikja á pönnu framarlega á helluborðinu á meðan þú heldur meðlæti heitu við lægra aflstig baka til. Færðu pönnuna eða pottinn til og aflstigið aðlagast sjálfkrafa. Með þessu móti getur hver sem er orðið fagmaður í eldhúsinu á skömmum tíma.

Fyrir aukið öryggi á helluborðinu
Öryggisvirkni
Öryggislæsing helluborðsins, sem veitir áreiðanlega vörn gegn því að stillingum helluborðsins sé breytt óvart eða með vilja, býður upp á meira öryggi við eldamennsku. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, til að koma í veg fyrir að þú brennir þig.
