
XL ofnrými
Stórt ofnrými fyrir sveigjanleika við notkun
Miele örbylgjuofnar með stjórntækjum á topppanel og nýtilegu 46 lítra ofnrými, veita allt það rými og sveigjanleika sem þú þarft til þess verða skapandi í eldhúsinu.

Quick MW
Hámarksafl með einum takka á stjórnborði
Hraðvalstakki fyrir örbylgjukerfi: þessi valkostur veitir skjótan aðgang að hámarksörbylgjuafli. Með því að ýta 1, 2, eða 3 sinnum á takkann, getur þú sett tækið af stað í 30, 60 eða 120 sekúndur. Að því loknu slekkur tækið sjálfkrafa á sér. Auðvelt er að endurstilla fyrirfram ákveðnar tímalengdir sem kerfið býður upp á eftir þínum þörfum - til dæmis, ef þú vilt hita upp tebolla á kvöldin eða hita upp barnamat.

Ofnrými úr ryðfríu stáli
Hagnýtt út í gegn
Hafðu gagn af fjölbreyttri virkni: innanrými Miele örbylgjuofna er gert úr ryðfríu stáli. Þetta tryggir árangursríka dreifingu örbylgja. Og gerir þrif einstaklega auðveld.

Quartz grill
Fullkomin brúnun
Sjáanlegt bragð: innbyggða Quartz grillið brúnar matvælin jafnt og fljótt með aðstoð snúningsdisks – fullt afl næst eftir einungis nokkrar sekúndur. Þetta fullkomnar til dæmis lokaútkomu rétta sem eru toppaðir með kartöflum auk ákveðinna eftirrétta og tryggir að þeir bragðist eins vel og þeir líta út.

Combi eldunarkerfi
Hámarkaðu árangurinn
Tvö skref í einu: núna getur þú eldað og brúnað matvæli í stöku eldunarkerfi, Örbylgju + Quartz grill. Þú getur eldað dásamlegar bökur, pizzur eða stökka kjúklingaleggi með Combi eldunarkerfi án þess að þurfa að breyta stillingum eða athuga matvælin í miðju eldunarferli.

Sjálfvirk örbylgjukerfi
Sláðu ávallt í gegn
Þægilegt og streitu-frítt: sjálfvirk örbylgjukerfi elda fyrir þig. Veldu einfaldlega eldunarkerfið sem þú vilt og stilltu inn t.d. þyngd matvælanna. Tækið finnur sjálfkrafa út úr aflstillingu og tímalengd eldunar. Óþarfi er að stilla nokkuð annað eða fylgjast með ferlinu. Árangursrík eldun í hvert skipti næst með sjálfvirkum örbylgjukerfum fyrir frosin og/eða þiðin matvæli.

LED ljóskastari
Besta mögulega lýsing
Þökk sé viðhaldsfríum eiginleikum, lýsir LED ljóskastarinn ofnrýmið fullkomlega upp á endingargóðan hátt. Hann er líka sérstaklega orkunýtinn.

Poppkornskerfi
Ferskt poppkorn með einni snertingu
Hvernig yrði góð bíómynd án poppkorns? Með sjálfvirka poppkornskerfinu getur þú búið til dásamlegt poppkorn í örbylgjuofninum heima hjá þér með einni snertingu á takka á stjórnborði. Tímalengd og wött eru miðuð við 100 g poka af örbylgjupoppi. Ef þú vilt stökkt poppkorn, getur þú aðlagað tímalengd að þínum þörfum.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.
