
CapDosing skömmtun með hylkjum
Þægileg og vistvæn skömmtun
Vilt þú þvo sérhæfðan vefnað, eins og ull eða útivistarfatnað, á fullkominn hátt og án mikillar fyrirhafnar? Það er hægt með Miele hylkjum. Þessi litlu hylki eru einfaldlega sett í mýkingarefnishólf þvottaefnisskúffunnar. Miele þvottavélin skammtar síðan innihaldinu inn á réttum tíma í þvottakerfinu – algerlega sjálfvirkt.

100% endurunnið plast
Hjálpumst að við að vernda auðlindir
Markmið Miele er að lágmarka umhverfisálag eins og hægt er. Umbúðirnar á þessari vöru eru þar af leiðandi gerðar úr 100% endurunnu plasti. Plastumbúðirnar er hægt að flokka frá, hreinsa og endurvinna í ný plastkorn eftir að þeim hefur verið fargað af neytendum. Plastkornin má síðan nýta til að búa til nýjar umbúðir. Með því skapast lokuð hringrás hráefnis án þess að þörf sé á að bæta við nýju plasti. Heil hringrás til að vernda umhverfið.
*Hægt er að skila plastumbúðum úr plastflokki 2 í sérstakan gám í Sorpu Sævarhöfða.

Hylki með praktískum flipa
Hentar fyrir allar Miele þvottavélar
Notkun Miele hylkja er auðveld: CapDosing stilling gerir Miele W1 þvottavélinni þinni kleift að skammta innihaldi hylkisins á fullkomnu augnabliki í þvottakerfinu – algerlega sjálfvirkt. Hylkin þarf einfaldlega að setja í hólfið fyrir mýkingarefni í þvottaefnisskúffunni. Miele hylkin er einnig hægt að opna á praktískan hátt með því að toga í flipann á lokinu, sem gerir notkun í öðrum þvottavélum mögulega. Notandinn setur innihaldið einfaldlega á tilheyrandi stað í þvottaefnisskúffuna.

Fullkominn árangur
Fullkominn árangur í hvert sinn
Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

Outdoor – sértækt þvottaefni
Tilvalið fyrir hágæða útivistarfatnað
Outdoor þvottaefnið frá Miele inniheldur lanolín sem virkar eins og róandi bað fyrir virkar himnur í hágæða útivistarfatnaði. Himnurnar viðhalda þannig teygjanleika sínum, formi og virkni.

Hylki – besta mögulega skömmtun
Þvoðu með fullkomlega skömmtuðu magni
Sérhæfð textílefni þarfnast sérstakrar umhirðu og þrifa. Miele hylki eru tilvalin fyrir hvers kyns sérhæfða notkun. Hvert hylki inniheldur nákvæmlega rétt magn af þvottaefni eða mýkingarefni fyrir þvottakerfi, miðað við þá hleðslu sem mælt er með. Þetta þýðir að engin hætta er á því að þú bætir of litlu magni í þvottinn. Flíkurnar þínar eru alltaf vandlega þrifnar og meðhöndlaðar – án þess að sóa þvottaefni.

Sjálfbær þvottur
Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott
Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.
