Professional kaffivélin sem var hönnuð árið 1970, ásamt Europiccola kaffivélinni, stendur fyrir bestu mögulegu tækni og hráefnaverðmætavali sem völ er á. Þær eru dýrmætt augnakonfekt sem framleiða hin fullkomna espresso og froðukenndan cappuccino.
Öllum kaffivélum með handfangi fylgir filter sem hægt er að setja í malað kaffi og ESE kaffipúða.
Með því að lyfta handfanginu upp þá flæðir vatn, undir þrýstingi, inn í kaffifilterinn. Handfangið er síðan lækkað niður sem leiðir til þess að vatnið rennur í gegnum kaffið og í kaffibollann. Með þessu móti er hægt að hella upp á kaffi með misjöfnum hraða sem tryggir að hægt er að hella upp á kaffibollann nákvæmlega eins og hver og einn vill hafa hann.
Gufustúturinn gerir manni kleift að útbúa mjólkurfroðu, heita mjólk, té og aðra heita drykki.
Mögulegt er að skipta um gufustút á kaffivélinni og setja á hana "Cappuccino Automatic" sem sýgur mjólk upp og beint ofan í bollann þegar ventill er opnaður.
- Þrýstingsmælir fyrir hitaketil