Fara í meginmál

Vörunúmer: GREN100X084U

Schock

Quartz vaskur, undirfelldur - GREENWICH N-100XL

Undirfelldur, svartur quartz vaskur frá Schock sem er 75 cm breiður.

99.990 kr.

Quartz vaskur, undirfelldur - GREENWICH N-100XL

Undirfelldur vaskur 

Undirfelldir vaskar eru einkar glæsilegur og stílhreinn kostur fyrir uppsetningu í borðplötur úr náttúrusteini, keramik, gleri, ryðfríu stáli og öðru gegnheilu, þykku hráefni. Brúnum undirfellds vasks er þá ýtt beint upp að úrtökunni á borðplötunni neðan frá, þannig að borðplatan nær alveg upp að útlínum vasksins. Brún vasksins leggst fullkomlega upp að úrtökunni í borðplötunni og myndar einstakt, fágað útlit án misfellna. Undirfelldir vaskar líta ekki bara vel út, þeir eru líka ótrúlega praktískir og auðveldir í þrifum. Öll óhreinindi og vatn er hægt að þurrka beint af borðplötunni og ofan í vaskinn.

Quartz vaskur flush - GREENWICH N-100

CRISTADUR®

Quartz vaskurinn er úr CRISTADUR®, hráefni sem var sérstaklega þróað af Schock og fyrirtækið er með einkaleyfi á. Vaskurinn er framleiddur í Bæjaralandi í Þýskalandi og er uppistaða hans allt að 75% quartz sandur frá svæðinu. Quartz sandur er hart efni frá náttúrunnar hendi og leikur þar af leiðandi lykilhlutverk í því hversu sterkbyggður og endingargóður vaskurinn er. Quarts vaskar úr CRISTADUR® hafa einstaka eiginleika og standast fyllilega allar kröfur sem gerðar eru í eldhúsinu. Vaskurinn hrindir frá sér óhreinindum, dregur ekki í sig lykt og er einstaklega öruggur þegar kemur að meðhöndlun matvæla. Yfirborð vasksins er mjög slétt, þar af leiðandi bakteríufrítt og engin leið fyrir bakteríur að grassera í vaskinum. Vaskurinn er ekki viðkvæmur fyrir hita og í lagi að setja heitan pott beint ofan í hann. Auk þess er vaskurinn með góðu bletta- og höggþoli.