Fara í meginmál

Vörunúmer: STRF0H

Miele

Ryksuga Guard S1

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Öflug | létt, fyrirferðarlítil | AirClean Plus filter | fyrir hörð gólfefni

  • Fyrirferðarlítil, létt og auðveld í geymslu - Compact System
  • Þægilegt handfang fyrir auðvelda meðhöndlun
  • Parket Twister - tilvalin fyrir viðkvæm gólfefni 
  • ComfortFit - hönnun sem skilar sér í hámarks hreinlæti
  • Auðveld þrif á stærri svæðum þökk sé 10 m vinnuradíus
  • AirCleanPlus filter - fjarlægir 99.99 % rykagna
  • Löng sveigjanleg kverkaspíss fyrir erfiða staði t.d. örmjó skot og sprungur

62.990 kr.

Ekki til á lager

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Tækninýjungar leiða til meiri nákvæmni

Öflug þrif 

Miele Guard ryksugan sameinar hámarks sogkraft og ótakmarkaðan notkunartíma - fullkomið fyrir stór svæði. Gagnger þrif eru tryggð með öflugri viftu, ákjósanlegri loftrás og ryksuguhaus. Ný ComfortFit tækni við festingu ryksugupoka ásamt öflugum útblástursfilterum, skila sér í fyrsta flokks frammistöðu og hreinlæti - og þú nýtur góðs af áreiðanlegum og öflugum þrifum.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Hámarks hreinlæti 

Kerfi filtera með ComfortFit

Tækninýjungar bæði á filterum og ryksugupokum gera þér kleift að njóta alhliða hreinlætis á heimilinu - þar sem afköst filtrunar eru 99,99% *. ComfortFit gerir það að verkum að sérstaklega auðvelt er að setja ryksugupoka í vélina. Örugg lokun á milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar tryggir að ekkert ryk sleppur fram hjá og að hægt sé að skipta um ryksugupoka á einstaklega hreinlátan hátt. Auk þess eru nýju ryksugupokarnir gerðir úr meira en 80% endurunnu efni.

* Samkvæmt IEC 62885-2 við notkun Miele tækis með AirClean filter 

Ryksuga Guard S1

Fyrirferðarlítil og létt

Nett hönnun

Ryksugan er tilvalin fyrir minni heimili og er einstaklega auðveld í notkun og meðförum vegna þess að hún er bæði fyrirferðalítil og aðeins 5,6 kg. Nett stærð ryksugunnar tryggir auk þess að auðvelt er að geyma hana í litlum rýmum og spara með því dýrmætt pláss.

Ryksuga Guard S1

Ákjósanlegt afl með einni snertingu

Valrofi

Sogkraftur ryksugunnar er stilltur rafrænt með einföldum snúningsrofa. Merkingar fyrir mismunandi notkun hjálpa til við að velja besta aflsstigið.

Ryksuga Guard S1

Fullkomið fyrir staði sem erfitt er að komast að

Sveigjanlegur XL kverkastútur

XL kverkastúturinn gerir þér kleift að hreinsa djúp op og mjóar sprungur. Hann er sérstaklega langur eða 55 cm sem gerir þér kleift að ná til erfiðra staða og fjarlægja óhreinindi á auðveldan hátt. Kverkastúturinn passar á allar Miele ryksugur og eykur þægindi við þrif.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Fer vel með gólfefni 

Parket Twister ryksuguhaus 

Miele Parket Twister ryksuguhaus er fullkominn fyrir áreynslulaus þrif á viðkvæmum hörðum gólfefnum. Ryksuguhausinn er mjög meðfærilegur og sveigjanlegur og hann er með mjúkum, náttúrulegum hárum sem renna yfir gólfefnið án þess að rispa það.

Ryksuga Guard S1

Fljótleg þrif á hvers kyns gólfefnum

FiberTeQ alhliða ryksuguhaus

Hágæða alhliða FiberTeQ gólfhausinn gerir þér kleift að ryksuga öll gólfefni á þægilegan og varlegan máta. Hann er praktískur, rennur mjuklega og áreynslulaust yfir bæði hörð gólf og teppi, og fjarlægir hár á gagngeran hátt. Gólfefni sem eru viðkvæm fyrir rispum eru varin og hreinsuð varlega.

Ryksuga Guard L1 Títaníum

Viðeigandi ryksugupokar

HyClean Pure TU

HyClean Pure TU ryksugupokarnir eru hannaðir til að passa fullkomlega í Guard L1 ryksuguna og tryggja framúrskarandi afköst og skilvirkni. ComfortFit tækni tryggir örugga lokun milli ryksugupoka og ryksugunnar sjálfrar þegar ryksugupokinn er festur í vélina. Tæknin sér til þess að allt ryk haldist inni í kerfinu sem aftur tryggir hámarks filtrun.

Ryksuga Guard L1 Obsidian svört

AirClean Plus filter fyrir framúrskarandi loft innandyra

AirClean Plus filter

AirClean Plus filterinn fangar ryk örugglega og tryggir skilvirka síun fyrir sérstaklega hreint loft innandyra.