Fara í meginmál

Vörunúmer: SOML0G

Miele

Ryksuga TriFlex HX2 PRO

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Snúrulaus skaftryksuga frá Miele með öflugri Vortex tækni, auka rafhlöðu og hleðslustöð. Mögulegt er að breyta samsetningu Triflex ryksugunnar eftir þörfum og er hún í raun 3 tæki í 1. Skaftryksugan er jafn öflug og hefðbundnar ryksugur og veita útskiptanlegar Li-ion rafhlöður allt að 120 mínútna samfelldan gangtíma. HEPA filter síar ofnæmisvaka úr andrúmsloftinu og breiður rafmagnsryksuguhaus með lýsingu tryggir bestu mögulegu sýn.

229.990 kr.

Ekki til á lager

Ryksuga TriFlex HX2 PRO

3 tæki í 1

Hámarks sveigjanleiki fyrir allar mögulegar aðstæður

Njóttu hámarks sveigjanleika: mögulegt er að staðsetja PowerUnit Miele Triflex skaftryksugunnar bæði uppi við topp skaftsins og einnig botn þess. Þessar mismunandi samsetningar ryksugunnar gera þér hvort tveggja kleift að ryksuga á þægilegan máta undir lág húsgögn og ryksuga stór svæði á áreynslulausan hátt. Einnig er mögulegt að nota PowerUnit stakt til dæmis til þess að ryksuga bílinn eða sófann á örskömmum tíma. Þú getur aðlagað TriFlex skaftryksuguna fullkomlega að þínum þörfum með því að breyta samsetningu hennar.

Ryksuga TriFlex HX1

Range samsetning

Náðu til erfiðari staða

Alls konar möguleikar: með því að staðsetja PowerUnit Triflex við topp skaftsins næst hámarks sveigjanleiki sem hentar til dæmis fullkomlega ef þú þarft að ryksuga undir lág húsgögn eða að ná ryki úr loftinu. Afar auðvelt er að ná undir rúm eða skápa með skaftryksugunni í Range samsetningu – fyrir fullkomlega hreint heimili.

Ryksuga TriFlex HX1

Comfort samsetning

Áreynslulaus þrif   

Fullkomið fyrir stór svæði: með því að staðsetja PowerUnit Triflex við botn skaftsins getur þú ryksugað stór rými eða svæði á þægilegan hátt - eins og langa ganga eða rúmgóðar setustofur. Skaftryksugan er létt í hendi sem gerir það að verkum að einstaklega auðvelt er að ryksuga með henni. Auk þessa er einfalt að geyma skaftryksuguna í standandi stöðu þegar hún er í Comfort samsetningu, sem hentar vel ef þú þarft að taka þér pásu frá ryksugun inn á milli.

Ryksuga TriFlex HX1

Compact samsetning

Einfalt í notkun

Þarftu bara að ryksuga upp smá brauðmylsnu úr sófanum eða losna við ryk úr bílsætunum? Það er einstaklega auðvelt með því að nota PowerUnit stakt í Compact samsetningu. Losaðu PowerUnit af skaftinu á einfaldan hátt og notaðu það óháð bæði skaftinu og rafmagnsryksuguhausnum. Alltaf tilbúið til notkunar – þú sparar tíma en þrífur samt á áhrifaríkan hátt.

Ryksuga TriFlex HX1

Sveigjanleiki við hleðslu

Þægilegt og fjölbreytt 

Þú getur hlaðið Miele Triflex á þægilegan hátt. Mögulegt er að hlaða skaftryksuguna í geymslustöðu á veggfestingu í þeirri samsetningu sem hentar, annað hvort með PowerUnit áföstu við topp eða botn skaftsins. Ef þú vilt ekki bora fyrir veggfestingu, getur þú einfaldlega stungið hleðslusnúrunni beint frá innstungu í rafhlöðuna sjálfa. Er engin innstunga þar sem þú geymir ryksuguna? Ekkert vandamál – mögulegt er að hlaða rafhlöðuna í hleðslustöð og án þess að hún sé áföst ryksugunni sjálfri.

Ryksuga TriFlex HX1 Pro

Hleðslustöð fyrir rafhlöðu

Ryksugaðu í lengri tíma með notkun hleðslustöðvar 

Auka rafhlaða og hleðslustöð fylgja með Miele Triflex Pro skaftryksugunni og hefur hún þar af leiðandi tvöfalt lengri vinnutíma er hinar skaftryksugurnar, eða allt að 120 mínútur. Þú getur hlaðið tækið á meðan þú ryksugar vegna þess að hleðslan er óháð notkun.

Ryksuga TriFlex HX1

Veggfesting 

Fullkomin geymslulausn 

Þægileg veggfesting gerir þér kleift að geyma Miele Triflex skaftryksuguna á veggnum ásamt setti af þremur ryksuguburstum sem fylgja með tækinu; húsgagnabursta, áklæðabursta og kverkaspíss. Þetta sparar pláss sem þar af leiðandi er mögulegt að nýta undir aðra hluti.

Ryksuga TriFlex HX1 Pro

HEPA lifetime filter

Andaðu léttar

Með HEPA lifetime filter getur þú fjarlægt ofnæmisvaka og búið til öruggt umhverfi innan þinna fjögurra veggja. Filterinn síar 99,999% af öllum ofnæmisvökum og öðrum örsmáum ögnum sem koma inn í ryksuguna. Agnirnar eru þannig fjarlægðar úr andrúmsloftinu og verða einstaklingar með ofnæmi þar af leiðandi síður útsettir fyrir frjókornum og almennu heimilisryki.

Ryksuga TriFlex HX1 Pro

BrilliantLight LED

Ryksugað við öll birtuskilyrði

Ótrúlega björt ljósrönd, sem er staðsett á framhlið Multi Floor XXL rafmagnsryksuguhaussins, tryggir að jafnvel hinar smæstu rykagnir eru vel sjáanlegar við ryksugun. Jafnvel ryk í dimmum hornum og undir húsgögnum fer ekki fram hjá þér.

Ryksuga TriFlex HX1

Twist2open

Fljótleg og örugg tæming

Er tankurinn fyrir ryk á Miele Triflex skaftryksugunni fullur? Twist2open eiginleiki gerir þér kleift að opna hann á einfaldan hátt – með einum snúningi. Tankurinn opnast strax og þú getur losað rykið á þægilegan máta ofan í ruslafötu.