Fara í meginmál

Vörunúmer: 18082F

Magimix

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

Sterkbyggð og afkastamikil berja- og safapressa frá Magimix með sítruspressu og miðflóttaaflsvindu. Tilvalin til að töfra fram 100% hreina grænmetis- og ávaxtasafa auk þess að vera frábær hjálparkokkur í berjatínslunni. 


69.990 kr.

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

3 in 1

Magimix hannaði eina safapressu til þess að búa til hvers konar heimagerða djúsa og safa. Tækið er í raun þrjár pressur í einni, það er safapressa, sítruspressa og berjapressa. Juice Expert 3 er tilvalin til að töfra fram 100% hreina safa úr öllum ávöxtum, berjum og grænmeti og er gædd margvíslegri tækni sem Magimix er með einkaleyfi fyrir. Hægari snúningur á safapressu lágmarkar froðumyndun og pressun á köldum safa viðheldur mörgum góðum eiginleikum ávaxta og grænmetis. Juice Expert nær allt að 96% safa, 85% af vítamínum og 95% af andoxunarefnum úr hráefninu við pressun. 

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

Ferskur appelsínusafi

Sítruspressan er fyrir appelsínur, sítrónur og grape og fylgja tvær stærðir af keilum fyrir stóra og litla sítrusávexti. Njóttu fersks appelsínusafa án steina í morgunsárið.

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

Hreinir og tærir safar

XL Juice Filter safapressa pressar hreina og tæra safa úr ávöxtum og grænmeti. Magimix er með einkaleyfi fyrir tækninni og eru gæði hreina safans greinileg. Mjög góð nýting er á hráefni og mjög lítil froða í safa. Safapressan hentar til að mynda fyrir epli, gulrætur, hvítkál og sellerí. 

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

Smoothies og mjúkir safar

Extra Press XL berjapressa pressar safa úr mjúkum eða elduðum ávöxtum og grænmeti. Magimix er með einkaleyfi fyrir tækninni, nýting á hráefni er mjög góð og gæði safans greinileg. Berjapressan hentar til að mynda fyrir hráefni eins og jarðaber, banana og tómata.

Safa- og berjapressa - Juice Expert 3

Sterkbyggð, hljóðlát og auðveld í þrifum

Juice Expert safapressan er framleidd í Frakklandi. Sterkur iðnaðarmótorinn er með 30 ára ábyrgð frá framleiðanda* og aðlagar sjálfur hraða sinn að verkinu. Safapressan er mjög hljóðlát og hefur fengið Quiet Mark verðlaun því til staðfestingar. Miðflóttaaflsvindan er úr ryðfríu stáli og tryggir hámarksafköst við safapressun. Þrif eru einstaklega auðveld. Hægt er að taka alla hluta sem komast í snertingu við safa af vélinni og þvo þá í uppþvottavél. Meðfylgjandi spaði auðveldar þrif á miðflóttaaflsvindu og hana má taka sérstaklega í sundur. Magimix safapressur eru sterkbyggðar fyrir lengri endingu.

*Ábyrgð miðast við venjulega heimilisnotkun