
5 in 1
Magimix hannaði eitt tæki til þess að búa til hvers konar heimagerða djúsa og safa. Tækið er í raun þrjár pressur í einni, það er safapressa, sítruspressa og berjapressa. Auk þess er hægt að rífa og sneiða grænmeti fyrir dýrindis ávaxta- og grænmetissalöt og búa til spagettí, tagliatelle eða fusilli úr grænmeti. Juice Expert 5 er tilvalin til að töfra fram 100% hreina safa úr öllum ávöxtum, berjum og grænmeti og er gædd margvíslegri tækni sem Magimix er með einkaleyfi fyrir. Hægari snúningur á safapressu lágmarkar froðumyndun og pressun á köldum safa viðheldur mörgum góðum eiginleikum ávaxta og grænmetis. Juice Expert nær allt að 96% safa, 85% af vítamínum og 95% af andoxunarefnum úr hráefninu við pressun.

Ferskur appelsínusafi
Sítruspressan er fyrir appelsínur, sítrónur og grape og fylgja tvær stærðir af keilum fyrir stóra og litla sítrusávexti. Njóttu fersks appelsínusafa án steina í morgunsárið.

Hreinir og tærir safar
XL Juice Filter safapressa pressar hreina og tæra safa úr ávöxtum og grænmeti. Magimix er með einkaleyfi fyrir tækninni og eru gæði hreina safans greinileg. Mjög góð nýting er á hráefni og mjög lítil froða í safa. Safapressan hentar til að mynda fyrir epli, gulrætur, hvítkál og sellerí.

Smoothies og mjúkir safar
Extra Press XL berjapressa pressar safa úr mjúkum eða elduðum ávöxtum og grænmeti. Magimix er með einkaleyfi fyrir tækninni, nýting á hráefni er mjög góð og gæði safans greinileg. Berjapressan hentar til að mynda fyrir hráefni eins og jarðaber, banana og tómata.

Salat út ávöxtum og grænmeti
Búðu til holl og góð salöt úr grænmeti og ávöxtum fyrir allt að 6 manns í einu. Sneið- og rifjárnin skera hráefnið fullkomlega jafnt og endar það beint ofan í sterkri XL skál úr polycarbonate.

Spagettí úr grænmeti
Breyttu til og búðu til frumlegt spagettí, tagliatelle og fusilli úr grænmeti með Spiral Expert. Þrjár keilur mynda mismunandi spírala og endar hráefnið beint ofan í sterkri XL skál úr polycarbonate.

Sterkbyggð, hljóðlát og auðveld í þrifum
Juice Expert safapressan er framleidd í Frakklandi. Sterkur iðnaðarmótorinn er með 30 ára ábyrgð frá framleiðanda* og aðlagar sjálfur hraða sinn að verkinu. Safapressan er mjög hljóðlát og hefur fengið Quiet Mark verðlaun því til staðfestingar. Miðflóttaaflsvindan er úr ryðfríu stáli og tryggir hámarksafköst við safapressun. Þrif eru einstaklega auðveld. Hægt er að taka alla hluta sem komast í snertingu við safa af vélinni og þvo þá í uppþvottavél. Meðfylgjandi spaði auðveldar þrif á miðflóttaaflsvindu og hana má taka sérstaklega í sundur. Magimix safapressur eru sterkbyggðar fyrir lengri endingu.
*Ábyrgð miðast við venjulega heimilisnotkun
