Fara í meginmál

Vörunúmer: XRCSD5255

Liebherr

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Side-by-Side kæli- & frystiskápur úr Prime línu Liebherr. Skápurinn er samsettur úr tveimur einingum sem eru hvor um sig sirka 60 cm breiðar og 185 cm á hæð. Side-by-side skápurinn er með klakavél, LED lýsingu, aðskildum kæli- og frystikerfum og mjúklokun. BioFresh skúffur tryggja lengri endingu ferskmetis og NoFrost frysta þarf ekki að affrysta.

1.499.900 kr.

Sérpöntun

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Frístandandi side-by-side kæli- og frystiskápur

Ísskápar hættu að vera einsleit hvít eldhústæki fyrir löngu síðan. Nú þegar borðstofur, stofur og eldhús eru ekki lengur greinilega aðskilin rými, gegnir hönnun æ mikilvægara hlutverki. Hönnun Liebherr kæli- og frystiskápa ber merki svonefndrar hreinstefnu; einfaldar og fallegar línur auk fágaðs og glæsilegs yfirborðs einkennir skápana. Útlit þeirra er þar af leiðandi klassískt og vandað sem gerir það að verkum að skáparnir blandast óaðfinnanlega inn í hvaða nútíma eldhús sem er, en eru jafnframt áberandi. Þökk sé InteriorFit kemur auk þess mjög vel út að byggja skápinn inn í innréttingu. Skápurinn passar inn í 60 cm djúpa gróp, loftop á milli veggja skápsins og aðliggjandi innréttingar eru óþörf og einungis hurðin stendur fram úr innréttingunni.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

BioFresh skúffur

BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. DrySafe skúffa hentar sérstaklega vel til þess að geyma kjöt, fisk og mjólkurvörur á meðan hátt rakastig í HydroSafe skúffu kemur í veg fyrir að ávextir og grænmeti þorni upp. BioFresh skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Klakavél

Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Hún er beintengd sem þýðir að vatnið kemur beint úr krananum. Klakaframleiðslu er hægt að auka með MaxIce stillingu og framleiða allt að 1,5 kg af klökum á sólarhring. Mögulegt er að stilla stærð klakaskúffunnar eftir hentugleika með færanlegu skilrúmi, en þannig má t.d. nota vinstri helming undir klaka og hægri undir ísbox eða alla skúffuna undir klaka. Hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu, tryggir klakavélin að ferskir og brakandi klakar eru til reiðu fyrir þig hvenær sem er.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

VarioTemp 

Mjög mikið svigrúm við geymslu matvæla: þökk sé VarioTemp getur þú stillt hitastig frystihluta skápsins á nákvæman hátt og notað rýmið með mismunandi hætti. Auk þess að geta notað rýmið sem venjulegan frysti á hitasviðinu -15°C til -26°C, er mögulegt að stilla hitasviðið á bilið -2°C til +9°C og nota t.d. undir drykki og forrétti ef halda á veislur. Einnig er hægt að stilla frystihlutann á +14°C og nota rýmið sem búrhólf undir matvörur sem eru viðkvæmar fyrir kulda, eins og kartöflur og lauka. Breytilegt hitastig – allt eftir hentugleika.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Touch & Swipe snertiskjár

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápanna með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápanna með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjáunum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápanna óviljandi.

Kæli- & frystiskápur með BioFresh - Premium

BluPerformance 

Kælitækni BluPerformance skápanna hefur allri verið þjappað saman í sökkulbotni þeirra, en það auk nákvæmrar elektrónískrar hitastýringar skilar sér í betri orkunýtni, auknu nothæfu innanrými, betri vinnuvistfræði frystirýmis og hljóðlátari skápum. 

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

SmartSteel

Skáparnir er með SmartSteel yfirborði og passar virkilega vel inn í fjölbreyttar gerðir eldhúsa. Lárétt pússun dregur ryðfría stálið fram, gefur skápunum silkigljáa og þægilega viðkomu. Sérstök húðun lágmarkar fingraför og gerir yfirborðið þolið gagnvart rispum. Þannig að ekkert truflar hágæða ytra byrði skápsins.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðarnar og dempar hreyfinguna þegar þeim er lokað. Tryggt er að hurðarnar lokist varlega, jafnvel þegar þær er fullhlaðnar, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

SmartDevice snjalltækni 

Snjalltækni frá Liebherr gerir hversdagslífið auðveldara. Skáparnir eru með SmartDeviceBox sem gerir þér kleift að stjórna skápunum með appi á auðveldan og þægilegan hátt meðan þú ert á ferðinni. Mögulegt er að breyta stillingum skápsins gegnum appið og berast tilkynningar í símann ef t.d. rof verður á rafstraumi eða ef hurðin hefur verið skilin eftir opin.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Mjög fullkomin LED lýsing 

Tvær innfelldar ljósasúlur eru í sitthvorri hlið annars skápsins og lýsa þær innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Hinn skápurinn er með LED ljósi í toppi og LED ljósi fyrir ofan BioFresh skúffur sem tryggir góða lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Innihald frystirýmis er auk þess vel upplýst með LED ljósi sem er staðsett beint fyrir ofan frystiskúffurnar og lýsir niður í þær. Matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápunum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis tryggðar.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Glæsilegt innanrými 

Fágaður panell úr ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekur bakhliðar skápanna. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Hillur skápanna eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista með satín áferð á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri með fallegum ryðfríum slám sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

EasyFresh skúffa

EasyFresh er skúffa í kælirými með stillanlegu loki. Mögulegt er að stjórna rakastigi í skúffunni með lokinu og þar með lengja endingu grænmetis og ávaxta. Skúffan er loftþétt þegar lok er í lokaðri stöðu sem, ásamt ferskmetinu sem þar er geymt, eykur rakastigið í skúffunni. Rakanum er síðan hleypt út með því að opna lokið. EasyFresh skúffan er hálf útdraganleg sem gerir skúffuna bæði þægilega í notkun og tryggir góðan sýnileika matvæla. Auðvelt er að fjarlægja skúffuna út úr skápnum við 90° hurðaropnun.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél - Plus

Útdraganleg VarioSafe geymsluskúffa 

VarioSafe skúffan hjálpar til við skipulag í skápnum og veitir góða yfirsýn yfir hlutina sem þar eru geymdir. Útdraganlega skúffan er fullkominn staður til þess að geyma minni hluti, t.d. pinkla, túbur og krukkur. Mögulegt er að hæðarstilla geymsluskúffuna á tvo mismunandi staði og stjórna þannig dýpt hennar eftir hentugleika.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

VarioBox í hurð

Auðvelt er að halda skipulagi á matvælum í hurð skápanna með VarioBox geymsluboxum.  Aðgengi er bæði öruggt og þægilegt, boxin eru útdraganleg með öryggisstoppi og þau er gagnsæ sem veitir notandanum fullkomna yfirsýn yfir innihaldið. Geymsluboxin henta einkar vel til þess að flokka og geyma lítil matvæli, mögulegt er að fjarlægja þau alveg úr hurðinni og þvo í uppþvottavél.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Sveigjanlegt frystirými 

Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

SBS kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Nytsamleg flöskuhilla

Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

Einstök þægindi 

Skáparnir er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæði óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skápa með því að geyma matvæli hvar sem er inni í þeim. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Auk alls sem er ofantalið eru skáparnir einstaklega hljóðlátir. 

Innbyggður kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skáparnir hafa verið hlaðnir eftir matarinnkaup. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skáparnir kæla sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.