-a26e7ede-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Skynjar potta og stærð þeirra
Besta mögulega orkunýting
Ef pottur er staðsettur á eldunarsvæði kviknar sjálfkrafa á tilheyrandi talnarunu þegar kveikt er á helluborðinu. Óþarfi er að kveikja handvikt á eldunarsvæðinu. Þetta tryggir bestu mögulegu orkunýtingu.
-min-36a62556-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
SmartSelect
Auðveld notkun með SmartSelect
Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Hvert eldunarsvæði hefur sitt eigið talnaborð með gulu ljósi sem er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Hella slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

PowerFlex
Tilvalið fyrir stóra potta
PowerFlex eldunarsvæðin eru mjög fjölbreytt og sveigjanleg. Þú getur notað allt svæðið án vandræða, hvort sem um ræðir einstakann pott eða sérstaklega stóra ofnpönnu. Booster aflauki allt að 7.3 kW veitir óviðjafnanlegan hraða við upphitun. PowerFlex eldunarsvæðin eru að sjálfsögðu líka með extra-aflauka sem næst með Miele TwinBooster tækni.

TwinBooster
Aflauki fyrir hraða upphitun
Samansafnað afl fyrir hraðari upphitun! Með TwinBooster extra aflauka frá Miele, getur þú sameinað afl tveggja eldunarsvæða og notað á einu eldunarsvæði. Þú getur einnig dreift aflinu mismikið á sitthvora helluna fyrir enn meiri sveigjanleika við eldun.

Öryggisvirkni
Fyrir aukið öryggi og fullvissu
Besta vörnin í öllum aðstæðum: öryggislæsing helluborðsins veitir áhrifaríka vörn gegn því að óvart sé breytt um stillingar á meðan helluborðið er í notkun. Ef kveikt er á eldunarsvæði á sama aflstigi í óeðlilega langan tíma eða ef enginn pottur er á helluborðinu, slokknar sjálfkrafa á því eftir ákveðinn tíma. Helluborðið tilgreinir einnig hvaða hellur eru heitar, en það minnir þig á að snerta ekki eldunarsvæði sem eru ennþá heit viðkomu.

Keramikgler
Auðvelt í þrifum
Keramikgler er mjög auðvelt í þrifum. Skvettur og önnur óhreinindi eru fjarlægð á einfaldan og þægilegan hátt, þökk sé sléttu yfirborðinu. Þrif spanhelluborða eru sérstaklega auðveld þar sem yfirborð þeirra helst tiltölulega kalt og matur brennur þar af leiðandi mjög sjaldan við þau.
