Fara í meginmál

Vörunúmer: 12111960

Miele

Sport þvottaefni 1,5 L

Sértækt þvottaefni í fljótandi formi fyrir íþróttafatnað og annan hagnýtan fatnað.

  • Fullkomið hreinlæti og ferskleiki sem endist
  • Viðheldur öndunareiginleikum textílefna
  • Eyðir óæskilegri lykt
  • Varðveitir lögun og eiginleika þráða í fatnaði fyrir góða endingu 
  • Brúsinn er gerður úr 100% endurunnu plasti - fyrir umhverfið


2.790 kr.

ImpraProtect vatnsþéttiefni 250 ml

Fullkominn árangur

Fullkominn árangur í hvert sinn

Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

Sport þvottaefni 250 ml

Sport – sértækt þvottaefni

Tilvalið fyrir íþróttafatnað

Textílefni úr gerviefnum sem eru í mikilli notkun krefjast hreinlætis, hvort sem þau eru notuð í skokk, hjólreiðar eða fjallgöngur. Miele Sport þvottaefnið fjarlægir óæskilega lykt á áhrifaríkan og öruggan hátt með hjálp hlutleysandi efna. Þvottaefnið verndar þræði bæði íþrótta- og útivistarfatnaðar og varðveitir einnig himnuvirkni í textílefnunum að fullu. Þetta þýðir að fatnaðurinn helst alltaf í toppstandi.

UltraSoft mýkingarefni 1,5 L

100% endurunnið plast

Hjálpumst að við að vernda auðlindir

Markmið Miele er að lágmarka umhverfisálag eins og hægt er. Umbúðirnar á þessari vöru eru þar af leiðandi gerðar úr 100% endurunnu plasti. Plastumbúðirnar er hægt að flokka frá, hreinsa og endurvinna í ný plastkorn eftir að þeim hefur verið fargað af neytendum. Plastkornin má síðan nýta til að búa til nýjar umbúðir. Með því skapast lokuð hringrás hráefnis án þess að þörf sé á að bæta við nýju plasti. Heil hringrás til að vernda umhverfið.

*Hægt er að skila plastumbúðum úr plastflokki 2 í sérstakan gám í Sorpu Sævarhöfða.

ImpraProtect vatnsþéttiefni 250 ml

Sjálfbær þvottur 

Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott

Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.