Fara í meginmál

Vörunúmer: CS7632FL

Miele

Tepan Yaki spanhelluborð - SmartLine raðeining

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

SmartLine raðeining frá Miele með Tepan Yaki spanhellum. Raðeiningin er um það bil 40 cm á breidd og er mjög fjölhæf. Bæði er hægt að nota spanhellurnar tvær sem tvö sjálfstæð eldunarsvæði eða tengja þær saman í eitt stórt svæði. Hvor hellan fyrir sig er með sitt eigið talnaborð og er upphitunartími mjög skammur. Raðeiningin getur haldið mat heitum, er með minni, mögulegt er að pása eldun og láta hellu slökkva sjálfkrafa á sér að ákveðnum tíma liðnum. SmartLine raðeiningum er hægt að raða upp á mismunandi hátt eins og hentar vegna þess að þær samþættast fullkomlega. Raðeininguna er bæði hægt að fella niður í borðplötu og hafa yfirfellda.

729.990 kr.

Sérpöntun

Tepan Yaki spanhelluborð - SmartLine raðeining

SmartSelect

Auðveld notkun með SmartSelect

Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Hvert eldunarsvæði hefur sitt eigið talnaborð með gulu ljósi sem er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Hella slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

Tepan Yaki spanhelluborð - SmartLine raðeining

Gaumljós fyrir heitar hellur

Algert öryggi

Miele helluborð eru með gaumljós fyrir öll eldunarsvæði sem sýnir hvort þau eru heit eða ekki. Ljósið mynnir þig á að hvorki snerta né setja eitthvað sem er viðkvæmt fyrir hita ofan á heit eldunarsvæði. Einnig gerir ljósið þér auðveldara að spara orku með því að nýta afgangshita.

Tepan Yaki spanhelluborð - SmartLine raðeining

Keramikgler 

Auðvelt í þrifum

Keramikgler er mjög auðvelt í þrifum. Skvettur og önnur óhreinindi eru fjarlægð á einfaldan og þægilegan hátt, þökk sé sléttu yfirborðinu. Þrif spanhelluborða eru sérstaklega auðveld þar sem yfirborð þeirra helst tiltölulega kalt og matur brennur þar af leiðandi mjög sjaldan við þau.