
Viðkvæmur þvottur þurrkaður varlega
Valkostur DryCare 40
Setjið fötin beint í þurrkarann strax að loknum 40°C þvotti í þvottavél, án þess að þurfa að flokka þau fyrst. Lágur hiti lofts verndar viðkvæmu flíkurnar þegar DryCare 40 valkostinum er bætt við hin ýmsu þvottakerfi. Valkosturinn er fljótleg og þægileg leið til að spara tíma við þvott og þurrkun textílefna sem þola þvott á 40°C, og tryggir hann varfærna þvottameðhöndlun. *
* Þessi valkostur hentar ekki fyrir ull og silki.

Hraðvirk og áhrifarík þurrkun
EcoDry tækni
Þurrkarar með EcoDry tækni þurrka hámarks þvottamagn hratt og með lágmarks orkunotkun. Þar að auki kemur einkaleyfisvarið filterakerfi (einkaleyfi EP 2 455 537) í veg fyrir að ló stífli varmaskiptirinn. Það er með þessu áhrifaríka samspili sem Miele þurrkarar viðhalda afköstum sínum allan þjónustutímann og tryggja ótrúlega stuttan þurrkunartíma.

Ferskur ilmur að lokinni þurrkun
FragranceDos *
FragranceDos ilmefnaskömmtun gerir þér kleift að gæða þvottinn þinn dásamlegum ilm alveg eins og þér líkar best. Þú getur valið úr úrvali mismunandi, tímalausra ilma og stillt hversu miklu magni er skammtað yfir þvottinn í hvert skipti.
* Einkaleyfi EP 2 431 516

Forstraujun með gufu
Upplifðu þvott sem er laus við krumpur
Forstraujunar kerfið er sérstaklega hannað til þess að spara þér tíma og orku þegar kemur að því að strauja flíkur. Gufan sléttir úr krumpum sem myndast við þeytivindu þvottavélarinnar og minnkar þannig krumpumyndun marktækt í þvottinum. Hentar bæði fyrir blaut og þurr textílefni.
-ecbb3b7c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Áreiðanleiki tryggður
Ábyrgð á Miele mótor
25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *
* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.

Sjálfvirk, nákvæm þurrkun
PerfectDry
Steinefni hafa áhrif á mælingu afgangsraka í þvotti, sem aftur hefur bein áhrif á þurrkunarniðurstöður. PerfectDry mælir núverandi magn steinefna í vatninu og aðlagar þurrkunarferlið í samræmi við það svo að þvotturinn þurrkast fullkomlega – niðurstaðan er hvorki of rakur né of þurr þvottur.

Bætið við stórum eða smáum flíkum eftir að kerfi hefur verið sett í gang
AddLoad
Þú getur auðveldlega bætt við þvotti sem hefur gleymst með AddLoad, hvort sem það eru gallabuxur, blússa eða stakur sokkur. Hagnýtur eiginleiki sem þýðir að óþarfi er að þurrka þær flíkur sem gleymast einar og sér.

Verndaðu fötin þín á meðan á þurrkun stendur
Mjúk Honeycomb tromla
Einstök uppbygging tromlunnar lyftir þvottinum hærra upp þegar hún snýst. Þvotturinn flýtur lengur ofan á heita loftinu sem skilar sér í enn jafnari þurrkun. Loftvasar myndast í sexhyrningum vaxkökumynstursins sem dregur úr falli þvottsins. Þetta tryggir varfærnislega meðhöndlun þvotts, minnkar krumpumyndun og auðveldar straujun verulega.

Þægilegt frárennsli vatns
Innbyggt frárennsli fyrir þétt vatn
Allir Miele þurrkarar með varmadælu eru með innbyggðri affallsslöngu fyrir þétt vatn. Þú getur þar af leiðandi dælt þétta vatninu í vask eða affall og sparað þér fyrirhöfnina við að tæma tankinn fyrir affallsvatnið.

Losar um þvott eftir þurrkun
Krumpuvörn
Þurrkarinn heldur áfram að hreyfa og losa um þvottinn í tromlunni þegar þurrkunarkerfi er lokið. Ef þvotturinn er ekki fjarlægður strax kemur krumpuvörnin þannig í veg fyrir krumpumyndun. Vaxkökumynstur Miele Honeycomb tromlunnar stuðlar einnig að minni krumpum í þvotti.

Varfærin meðhöndlun textílefna
Varmadælu tækni
Þurrkarar með varmadælu eru þekktir fyrir að vera orkunýtnir. Lágt hitastig verndar bæði textílþræðina í þvottinum þínum, sem og minnkar kostnað við þurrkun. Þetta þýðir að þú getur þurrkað viðkvæmar flíkur án þess að hafa áhyggjur af skemmdum og óþarfa sliti.

Stöðugt lág orkunotkun
Viðhaldsfrír varmaskiptir
Í Miele þurrkurum með varmadælu er varmaskiptirinn vel varinn með áhrifaríkri filtrun og er þar af leiðandi viðhaldsfrír. Þetta tryggir stöðugt lága orkunotkun út allan þjónustutíma þurrkarans. Ekki bara fyrstu árin sem þú átt hann.

Besta vernd fyrir heimilið þitt
Besti mögulegi þéttingarafkastaflokkur
Allir Miele þurrkarar ná bestu mögulegu gildum varðandi lekavörn og þar af leiðandi besta mögulega þéttingarafkastaflokki A. Þetta þýðir að aðeins lágmarks magn af röku og heitu lofti sleppur út úr tækinu. Þurrkarar í þéttingarafkastaflokki B losa allt að 320 ml meiri raka út í rýmið – tvöfalt meira en þurrkarar í flokki A. Þessi þéttleiki þurrkarans verndar rýmið og innréttinguna, þar sem engin rakamyndun myndast á veggjum og gólflistum.

Sjálfbærni mætir tímasparnaði
EcoSpeed
EcoSpeed gerir þér kleift að þurrka þvottinn á sérstaklega hraðvirkan hátt, en á sama tíma með bestu mögulegu orkunýtni. Fullkomin blanda af hagkvæmni og styttri tímalengd þurrkunarkerfa, bæði gott fyrir umhverfið og veskið. Þökk sé viðhaldsfrírri varmadælu tækni og rafeindastýrðum mótor sem aðlagar hraða eftir þyngd, getur þú notað EcoSpeed til að stytta þurrkunartíma um allt að 20 mínútur. *
* Tímasparnaður reiknaður miðað við Miele þurrkara án EcoSpeed með sömu þvottahleðslu og sambærilegri orkunýtni. Prófað á þurrkunarkerfi Bómull með fullri hleðslu.

Hagkvæm og umhverfisvæn þurrkun
Orkunýtni
Miele þurrkarar eru hannaðir með lágmarks orkunotkun að leiðarljósi. Þú nýtur góðs af framúrskarandi árangri þurrkunar sem er bæði góður fyrir veskið sem og umhverfið.

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír
ProfiEco mótor *
ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.
* Einkaleyfi EP 2 840 679
