
Algerlega til fyrirmyndar
Enn betri orkunýtni
Miele þvottavélar hafa verið hannaðar sérstaklega fyrir lágmarks vatns- og orkunotkun. Þar af leiðandi eru sum módel jafnvel 10% orkunýtnari en þröskuldsgildið (52) fyrir hæsta orkunýtniflokk A. Þú nýtur góðs af framúrskarandi þvottaniðurstöðum sem eru bæði umhverfisvænar og fara vel með veskið.

Rétt þvottaefni fyrir hvern þvott
CapDos *
Mögulegt er að nota hylki með sérhæfðum þvottaefnum og mýkingarefnum í vélina, eins og ImpraProtect vatnsþéttiefni, CottonRepair bómullarbæti eða Booster hvata fyrir erfiða bletti. Hylkin eru gerð úr 100% endurunnu plasti. Þau innihalda nákvæmlega réttan skammt af efni og byrja að virka um leið og efnin komast í snertingu við vatn. Þetta kemur í veg fyrir notkun of lítils eða of mikils þvottaefnis. Ef nauðsyn krefur, er alltaf mögulegt að opna hylkin með flipa.
* Einkaleyfi EP 2 365 120

Verndaðu fötin þín í tromlunni
Honeycomb tromla
Einstök uppbygging tromlunnar gegnir mikilvægu hlutverki í umhirðu þvottarins. Þökk sé sérstakri lögun hennar myndast vatnslag á milli tromlunnar og efnisins þegar hún snýst. Þvotturinn rennur þar af leiðandi varlega um tromluna sem fer betur með þræði textílefnanna og flíkurnar halda gæðum sínum til lengri tíma.
-ecbb3b7c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Áreiðanleiki tryggður
Ábyrgð á Miele mótor
25 ára ábyrgð er á mótorum þvottavéla, þurrkara og þvottavéla-þurrkara frá Miele sem seldir eru hjá Eirvík, þar innifalin tveggja ára lögbundin ábyrgð. *
* Miele tæki sem keypt eru hjá Eirvík eru með 5 ára ábyrgð og því fylgir enginn auka kostnaður. Miele þvottavélar sem keyptar eru hjá Eirvík eftir 1. október 2025 eru auk þess með 25 ára ábyrgð á mótor – skrá þarf tæki á eftirfarandi slóð til að virkja mótorábyrgð: https://www.miele.com/en/com/iceland-eirvik-heimilistaeki-ehf-4514.htm. Professional tæki og ”Litlu risar” eru undanskilin mótorábyrgð.
-d3470796-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Sjálfvirkt eftirlit með hleðslu í vél
Aukin skilvirkni og orkunýtni
Þvottavélin er með sjálfvirku eftirliti á hleðslu. Vélin skynjar hleðsluna og notar einungis það vatnsmagn og rafmagn sem nauðsynlegt er fyrir fullkomnar þvotta- og skolunarniðurstöður. Ef lítið magn af þvotti er í vélinni þá minnkar vélin vatns- og orkunotkun sjálfkrafa.
-6cbb262c-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Bættu við eða fjarlægðu stakar flíkur
AddLoad
Þú getur bætt við sokki sem gleymdist eða annarri flík á þægilegan hátt á meðan á þvottakerfi stendur, þökk sé AddLoad. Settir þú óvart svarta skyrtu með hvíta þvottinum fyrir mistök? Þá getur þú fjarlægt hana á þægilegan hátt á meðan á þvottakerfi stendur. Valið þvottakerfi mun halda áfram sjálfkrafa eftir það.

Hagkvæmur, öflugur og viðhaldsfrír
ProfiEco mótor *
ProfiEco mótorinn frá Miele er öflugur inverter-mótor sem notar orku á skilvirkan og hljóðlátan hátt. Mótorinn er næstum viðhaldsfrír, þökk sé rafeindastýringu og því að hann er kolalaus. Þessi nýstárlega hönnun tryggir áralanga skilvirka, áhyggjulausa og þægilega þvottameðhöndlun.
* Einkaleyfi EP 2 840 679
-min-e032f6bf-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Vatnsvarnarkerfi (WCS)
Öryggi þökk sé viðbótar skynjara
Vatnsvarnarkerfið (WCS) verndar þvottavélina gegn vatnsskemmdum. Skynjari fylgist með vatnsrennsli inn á vélina. Vélin hættir sjálfkrafa að taka inn á sig vatn ef venjuleg vatnshæð næst ekki. Ef vatnsleki verður í vélinni safnast hann í botni sökkulsins, inntakslokinn í vélinni lokast og vatninu á botni sökkulsins er dælt í burtu. Flotrofi í affallsbakka skynjar einnig ef leki á sér stað.
