
Sensitive þvottaefni – mjög gott fyrir húðina
Verndar viðkvæma húð
Með Miele Sensitive þvottaefni getur þú þvegið fötin þín án þess að hika, jafnvel þótt þú sért með viðkvæma húð. Vegna þess að þvottaefnið skilar djúpri hreinsun þvotts en inniheldur engin ilmefni eða þekkta ofnæmisvalda. Þannig gefur þú viðkvæmri húð þá hvíld sem hún þarfnast og tryggir jafnframt frábæran þvottaárangur.

100% endurunnið plast
Hjálpumst að við að vernda auðlindir
Markmið Miele er að lágmarka umhverfisálag eins og hægt er. Umbúðirnar á þessari vöru eru þar af leiðandi gerðar úr 100% endurunnu plasti. Plastumbúðirnar er hægt að flokka frá, hreinsa og endurvinna í ný plastkorn eftir að þeim hefur verið fargað af neytendum. Plastkornin má síðan nýta til að búa til nýjar umbúðir. Með því skapast lokuð hringrás hráefnis án þess að þörf sé á að bæta við nýju plasti. Heil hringrás til að vernda umhverfið.
*Hægt er að skila plastumbúðum úr plastflokki 2 í sérstakan gám í Sorpu Sævarhöfða.

Fullkominn árangur
Fullkominn árangur í hvert sinn
Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

Blettahreinsun
Fyrir skínandi hreinan þvott
Þvottaefnið er með afkastamiklum, nútíma innihaldsefnum sem tryggja hámarks þvottagæði. Framúrskarandi blettahreinsun næst auk þess á öllum hitastigum þökk sé öflugri formúlu.

Öflug ensím
Framúrskarandi þrif
Miele þvottaefni innihalda allt að sjö öflug ensím fyrir hreinan og blettalausan þvott. Þau tryggja framúrskarandi þrif og áhrifaríka blettahreinsun, jafnvel á lágum hitastigum. Hvert ensím hefur sitt hlutverk: lípasi fjarlægir t.d. fitubletti og pektínasi fjarlægir bletti sem innihalda pektín eins og sultu. Sellulasi kemur á sama tíma í veg fyrir hnökrun og viðheldur björtum litum. Fyrir vikið lítur þvotturinn þinn út eins og nýr í lengri tíma.

UltraPhase Sensitive – umhverfisvænt
Hart á bletti – mjúkt fyrir umhverfið
Miele UltraPhase Sensitive þvottaefni er ekki bara áhrifaríkt, það er líka umhverfisvænt. Þvottaefnið inniheldur alls ekkert örplast, litarefni né dýraafurðir, sem gerir það algerlega vegan. Það sem meira er, þá inniheldur þvottaefnið yfirborðsvirk efni úr jurtaríkinu sem eru sjálfbær uppspretta. Þvottaefnið er þar af leiðandi frábærlega vistvænt og brotnar auðveldlega niður í náttúrunni.

Miele þvottaefni – áhrifarík og umhverfisvæn
Vegna þess að okkur er annt um umhverfið
Langar þig að þvo þvott á áhrifaríkan máta en á sama tíma á umhverfisvænan hátt? Það er ekkert mál með Miele þvottaefnum! Blettir eru fjarlægðir rækilega með sérstökum afkastamiklum ensímum og það á lágum hitastigum. Meðhöndlun textíls fyrir eða eftir þvott er óþörf sem sparar vatn og verndar þar með umhverfið. Gætileg þrif á fatnaði skilar sér einnig í því að sjaldnar er þörf á því að kaupa nýjar flíkur.

Sjálfbær þvottur
Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott
Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.

ColorProtect
Framúrskarandi litavörn
Textílefni geta blætt litum í þvotti. Þvottaefnið hjálpar þér að viðhalda litunum í þvottinum þínum lengur. Þökk sé sérstökum tálma sem hindrar litaflutning, getur þú komið í veg fyrir mislitun þvotts. Þetta þýðir að þú getur þvegið litaðar flíkur saman án nokkurra vandræða, sem er t.d. fullkomið fyrir marglit efni. Það sem meira er, viðheldur ensímið sellulasi ljómandi litadýrð þvottsins.
