Fara í meginmál

Vörunúmer: 11891600

Miele

UltraPhase 1

2 fasa þvottaefni fyrir litaðan og hvítan þvott.

  • Ný formúla með ferskum Miele Aqua ilmi
  • Fyrir skæra liti og skjannahvítt tau
  • Framúrskarandi blettahreinsunareiginleikar jafnvel við lágt hitastig
  • Engin ofskömmtun þvottaefna þökk sé sjálfvirkri skömmtun
  • Dugar vel – 1,4 lítrar fyrir 37 þvotta
  • Fyrir allar Miele W1 þvottavélar með TwinDos

2.590 kr.

UltraPhase 1

UltraPhase – staðfest af Hohenstein Institute

Gæði staðfest af Hohenstein Institute

Þýska stofnunin Hohenstein Institute staðfesti framúrskarandi þvottaárangur sjálfvirkrar tveggja fasa sápuskömmtunar með Miele UltraPhase 1 og UltraPhase 2 þvottaefnisfösum. Atriði sem voru prófuð voru blettahreinsun, hversu hvítur þvottur hélst, hvernig komið var í veg fyrir gránun, nákvæmni skömmtunar og hvernig komið var í veg fyrir hnökrun þvotts.

UltraPhase 2 Sensitive

TwinDos® sjálfvirk sápuskömmtun

Besta sápuskömmtun á fljótandi sápu við fingurgómana

TwinDos® sjálfvirk sápskömmtun með UltraPhase 1 og 2 er ekki aðeins praktísk, heldur tryggir hún líka fullkomin þrif á sama tíma. TwinDos® kerfið skammtar þvottaefnisfösunum UltraPhase 1 og 2 inn í þvottaferlið á besta mögulega tíma og nær þannig hámarks þvottaárangri. TwinDos® skammtar þvottafösunum auk þess með svo mikilli nákvæmni að þú sparar allt að 30% þvottaefni miðað við almenna notkun þvottaefna.

ImpraProtect vatnsþéttiefni 250 ml

Fullkominn árangur

Fullkominn árangur í hvert sinn

Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

UltraColor þvottaefni 1,5 L

Öflug ensím

Framúrskarandi þrif

Miele þvottaefni innihalda allt að sjö öflug ensím fyrir hreinan og blettalausan þvott. Þau tryggja framúrskarandi þrif og áhrifaríka blettahreinsun, jafnvel á lágum hitastigum. Hvert ensím hefur sitt hlutverk: lípasi fjarlægir t.d. fitubletti og pektínasi fjarlægir bletti sem innihalda pektín eins og sultu. Sellulasi kemur á sama tíma í veg fyrir hnökrun og viðheldur björtum litum. Fyrir vikið lítur þvotturinn þinn út eins og nýr í lengri tíma.

UltraColor þvottaefni 1,5 L

Miele þvottaefni – áhrifarík og umhverfisvæn

Vegna þess að okkur er annt um umhverfið

Langar þig að þvo þvott á áhrifaríkan máta en á sama tíma á umhverfisvænan hátt? Það er ekkert mál með Miele þvottaefnum! Blettir eru fjarlægðir rækilega með sérstökum afkastamiklum ensímum og það á lágum hitastigum. Meðhöndlun textíls fyrir eða eftir þvott er óþörf sem sparar vatn og verndar þar með umhverfið. Gætileg þrif á fatnaði skilar sér einnig í því að sjaldnar er þörf á því að kaupa nýjar flíkur.

ImpraProtect vatnsþéttiefni 250 ml

Sjálfbær þvottur 

Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott

Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.

UltraColor þvottaefni 1,5 L

ColorProtect

Framúrskarandi litavörn

Textílefni geta blætt litum í þvotti. Þvottaefnið hjálpar þér að viðhalda litunum í þvottinum þínum lengur. Þökk sé sérstökum tálma sem hindrar litaflutning, getur þú komið í veg fyrir mislitun þvotts. Þetta þýðir að þú getur þvegið litaðar flíkur saman án nokkurra vandræða, sem er t.d. fullkomið fyrir marglit efni. Það sem meira er, viðheldur ensímið sellulasi ljómandi litadýrð þvottsins.