
Silkimjúkur þvottur
Fær fólki til að líða vel
Elskar þú lykt af nýþvegnum þvotti? Miele mýkingarefni umvefur þvottinn þinn dásamlegum langvarandi og ferskum ilmi. Á sama tíma verða fötin silkimjúk, þægileg viðkomu og algerlega hrein. Upplifðu fullkomna samsetningu hreinleika og ilms.

100% endurunnið plast
Hjálpumst að við að vernda auðlindir
Markmið Miele er að lágmarka umhverfisálag eins og hægt er. Umbúðirnar á þessari vöru eru þar af leiðandi gerðar úr 100% endurunnu plasti. Plastumbúðirnar er hægt að flokka frá, hreinsa og endurvinna í ný plastkorn eftir að þeim hefur verið fargað af neytendum. Plastkornin má síðan nýta til að búa til nýjar umbúðir. Með því skapast lokuð hringrás hráefnis án þess að þörf sé á að bæta við nýju plasti. Heil hringrás til að vernda umhverfið.
*Hægt er að skila plastumbúðum úr plastflokki 2 í sérstakan gám í Sorpu Sævarhöfða.

Fullkominn árangur
Fullkominn árangur í hvert sinn
Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

Sjálfbær þvottur
Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott
Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.
