
Fullkominn árangur
Fullkominn árangur í hvert sinn
Besta samspil þvottaefnis og þvottavélar: Einfaldlega fullkominn þvottur með Miele!

Blettahreinsun
Fyrir skínandi hreinan þvott
Þvottaefnið er með afkastamiklum, nútíma innihaldsefnum sem tryggja hámarks þvottagæði. Framúrskarandi blettahreinsun næst auk þess á öllum hitastigum þökk sé öflugri formúlu.

UltraWhita – öflug formúla
Fyrir skínandi hvítan þvott
UltraWhite þvottaefnið frá Miele er með háu innihaldi virks súrefnis sem tryggir bæði hámarks þvottagæði og skínandi hvítan þvott.

Sjálfbær þvottur
Ráðleggingar varðandi sjálfbæran þvott
Miele þvottaefni eru áhrifarík frá 30°C, en lægri þvottahiti er umhverfisvænni. Fullnýttu hleðslugetu þvottavélarinnar, nema þegar þú þværð viðkvæmar flíkur. Aðlagaðu magn þvottaefnis miðað við vatnshörku og magn óhreininda í þvotti. Þvoðu reglulega 60°C þvottakerfi með stillingum fyrir hvítan þvott. Skildu dyr þvottavélarinnar eftir opnar á milli þvotta. Ef þú eða einhver annar á heimilinu er með rykofnæmi skaltu þvo rúmfötin við að minnsta kosti 60°C.
