
Besta mögulega hreinsun á innan við klukkutíma
QuickPowerWash
Óviðjafnanleg samsetning: QuickPowerWash þvottakerfi og sérhannað þvottaefni frá Miele, All in 1 UltraTabs, ná besta mögulega þvotti og þurrki á meðalskítugu leirtaui á 58 mínútum. Þessar sérhönnuðu töflur eru aðeins tvær til þrjár mínútur að leysast upp. Þetta þýðir frábær þrif sem hefjast strax í byrjun þvottar.

Áhrifaríkt gegn vírusum – vísindalegar prófanir *
Hreinlæti – staðfest með prófunum
Áhyggjulaus uppþvottur: Fjarlægðu áreiðanlega meira en 99,9% af vírusum (t.d. corona, influenza eða norovirus) með notkun PowerDisk eða UltraTabs á þvottakerfum Hreinlæti 70°C eða Öflugt þvottakerfi 75°C. Skilvirkni hefur verið staðfest með prófunum Institute for Hygiene and Virology. Rhine-Waal University of Applied Sciences staðfestir einnig ótrúlegt hreinlæti Miele uppþvottavéla. Í hreinlætisprófunum voru meira en 99,99% af bakteríum (Enterococcus faecium) fjarlægðar með notkun AutoDos og PowerDisk á þvottakerfum ECO og QuickPowerWash 65 °C. Þvottakerfi Hreinlæti 70°C minnkaði auk þess magn baktería (Enterococcus faecium eða Micrococcus luteus) töluvert, jafnvel án notkunar þvottaefnis.
* Samkvæmt vottun frá Institute for Hygiene and Virology varðandi fjarlægingu hjúpaðra og óhjúpaðra veira (t.d. kórónaveira, inflúensuveira eða nóróveira) í prófuðum þvottakerfum Hreinlæti 70°C og Öflugt þvottakerfi 75°C, í öllum tilvikum með notkun PowerDisk/UltraTabs. Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi slóð www.miele.com/g7000-c.

ComfortClose
Frábær hurðarhönnun
Upplifðu hversu auðveldlega dyrin á Miele uppþvottavélinni opnast og lokast. Til þægindaauka helst hurðin einnig á þeim stað sem að þú vilt að hún haldist.

Litaðir hlutar innvols fyrir þægindi við notkun
FlexAssist litakóðun
FlexAssist litakóðun merkir þá hluta innvolsins sem hægt er að færa til og auðveldar þér að aðlaga grindur uppþvottavélarinnar að þínum þörfum. Lítil tákn, eins og bolli eða vínglas, á litaða innvolsinu gefur til kynna hvernig hægt er að nota svæðið. Auk þess gera handföng merkt með FlexAssist litakóðun þér kleift að aðlaga körfurnar á sem fjölhæfastan hátt með einföldum úlnliðshreyfingum.

Aukið öryggi
Tvöföld vatnslekavörn (WPS)
Tveir lokar eru í uppþvottavélinni. Ef fyrri lokinn bilar þá lokar sá síðari, segulloki við krana, inntakinu. Hlíf er auk þess á vatnsinntaksslöngunni til öryggis, ef skemmdir verða á innri slöngunni rennur vatn niður hlífina og í gólfbakkann.

Ný hönnun á innflæði vatns fyrir minni vatnsnotkun
EcoPower tækni
Vatnsnotkun í ECO þvottakerfi hefur dregist saman og er nú aðeins 8,4 lítrar. Þetta þýðir að minni orku þarf til að hita upp vatnið og þú nýtur góðs af orkunýtnari uppþvottavél. Vatnssparnaður næst með nýrri hönnun varðandi innflæði vatns og nýju mjög áhrifaríku kerfi filtera. Viðbótareinangrun minnkar einnig hitatap og minnkar þar af leiðandi þá orkuþörf sem þarf til þess að hita upp vatnið.
-min-240ee3a0-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
Sparneytin uppþvottavél frá Miele
Ferskvatns uppþvottavél
Uppþvottavélin notar einungis ferskvatn og getur þvegið leirtau með einungis 6,0 lítrum af vatni á AUTO þvottakerfi - mun minna en innihald venjulegs vasks. Vegna þessa eiginleika hefur vatnsnotkun í Miele uppþvottavélum minnkað um 85% á seinustu 30 árum. Orkunotkun hefur líka dregist saman og í raun aldrei verið minni.

Notkun aðlöguð
Hálf vél
Þú getur keyrt uppþvottavélina með góðri samvisku jafnvel þótt hún sé ekki fullhlaðin: í næstum öllum þvottakerfum mælir uppþvottavélin hversu mikið leirtau er í innanrými og aðlagar vatnsnotkun á nákvæman hátt samkvæmt því. Vegna sjálfvirkrar skynjunar vélarinnar á hleðslu, er ekki lengur þörf á því að bíða þar til hún er fullhlaðin.
