Fara í meginmál

Vörunúmer: G5851SCVI

Miele

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Uppþvottavél til 100% innbyggingar. Vélin er með fjölbreytt innvols: 3D Multiflex hnífaparagrind, hæðarstillanleg efri grind og rúmgóð neðri grind. Uppþvottavélin er með AutoOpen þurrkun í lok þvottakerfis sem bætir þurrkun á leirtaui. Uppþvottavélin er með QuickPowerWash kerfi sem skilar fullkomnum þvotti og þurrkun á innan við 58 mínútum.

349.990 kr.

Ekki til á lager

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

QuickPowerWash

Besta mögulega hreinsun á innan við klukkutíma

Óviðjafnanleg samsetning: QuickPowerWash þvottakerfi og sérhannaðar UltraTabs ná besta mögulega þvotti og þurrki á meðalskítugu leirtaui á 58 mínútum. Þessar sérhönnuðu töflur eru aðeins tvær til þrjár mínútur að leysast upp. Þrif eru þar af leiðandi frábær allt frá fyrstu mínútum þvottar. Niðurstaða: Þvottahæfnisflokkur A.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

AutoOpen þurrkun

Fyrir þurrt leirtau

Allt þurrt: Dyr uppþvottavélarinnar opnast sjálfkrafa í lok sumra þvottakerfa. Með AutoOpen þurrkun ná jafnvel hlutir eins og plastdiskar, sem eru alla jafna krefjandi þegar kemur að þurrkun, að þorna almennilega. Sérstök loftgöng vernda borðplötuna þína gegn raka.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Hreinlæti – staðfest með prófunum 

Árangurinn sem næst veitir þér algera hugaró 

Fjarlægðu áreiðanlega meira en 99,9% af vírusum (t.d. corona, influenza eða norovirus) með notkun PowerDisk eða UltraTab töflum á þvottakerfum Hreinlæti 70°C eða Öflugt þvottakerfi 75°C. Skilvirkni hefur verið staðfest með prófunum Institute for Hygiene and Virology.

Rhine-Waal University of Applied Sciences staðfestir einnig ótrúlegt hreinlæti Miele uppþvottavéla. Í hreinlætisprófunum voru meira en 99,99% af bakteríum (Enterococcus faecium) fjarlægðar með notkun AutoDos og PowerDisk á þvottakerfum ECO og QuickPowerWash 65 °C. 

* Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi slóð https://www.miele.com/g7000-c

Þurrkari með PerfectDry, FragranceDos2 & SteamFinish (9kg)

Einstök orkunýting

Frábær þvottur og þurrkun samhliða orkusparnaði

Orkunotkun og afkastageta uppþvottavélarinnar þinnar er gefin upp á orkumiða. Miele tæki sameina bestu mögulegu þvotta- og þurrkunarniðurstöður með virkilega lítilli orku- og vatnsnotkun.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

EcoPower tækni 

Ný hönnun á innflæði vatns fyrir minni vatnsnotkun

Vatnsnotkun í ECO þvottakerfi hefur dregist saman og er nú 8,9 lítrar. Þetta skilar sér í minni orkuþörf vegna upphitunar vatns og þú nýtur góðs af orkunýtnari uppþvottavél. Vatnssparnaður næst með nýrri hönnun varðandi innflæði vatns og nýju mjög áhrifaríku kerfi filtera.  Viðbótareinangrun minnkar einnig hitatap og minnkar þar af leiðandi þá orkuþörf sem þarf til þess að hita upp vatnið.

Uppþvottavél XXL með AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

ComfortClose

Besta hurðarhönnun okkar tíma

Upplifðu hversu auðveldlega dyrin á Miele uppþvottavélinni opnast og lokast. Til þægindaauka helst hurðin einnig á þeim stað sem að þú vilt að hún haldist.

Uppþvottavél með AutoOpen - 100% innbyggð

Litaðir hlutar innvols fyrir þægindi við notkun

FlexAssist litakóðun

FlexAssist litakóðun merkir þá hluta innvolsins sem hægt er að færa til og auðveldar þér að aðlaga grindur uppþvottavélarinnar að þínum þörfum. Lítil tákn, eins og bolli eða vínglas, á litaða innvolsinu gefur til kynna hvernig hægt er að nota svæðið. Auk þess gera handföng merkt með FlexAssist litakóðun þér kleift að aðlaga körfurnar á sem fjölhæfastan hátt með einföldum úlnliðshreyfingum.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

3D MultiFlex hnífaparagrind

Hámarks sveigjanleiki

Hnífaparagrindin hefur verið betrumbætt þannig að mögulegt sé að koma ýmsum borðbúnaði fyrir, til dæmis litlum espresso bollum. 3D MultiFlex hnífaparagrindin er með miðsvæði sem hægt er að lækka niður og tveimur hliðarsvæðum. Vinstra hliðarsvæðinu er hægt að ýta til hægri til þess að búa til rými fyrir há vínglös í efri grind. Dýpt hægra hliðarsvæðis er hægt að stilla auðveldlega og koma þar fyrir bæði fyrirferðameiri áhöldum og smærra leirtaui.

Uppþvottavél XXL með AutoOpen - 100% innbyggð

Comfort

Sveigjanleg hönnun innvols – sérsniðin að hversdagsþörfum

Auðvelt er að hæðarstilla efri grind í öllum Miele uppþvottavélum – jafnvel í hallandi stöðu. Samtals 9 stillingar eru mögulegar. Þetta veitir þér möguleika á því að fullnýta innanrými uppþvottavélarinnar í hvert skipti sem þú notar hana. MultiComfort svæðið í neðri grind gerir þér kleift að setja diska í mismunandi stærðum, allt að 35 cm í þvermál, í þrjár raðir. Rýmið nýtist einnig vel til þess að koma skurðarbrettum, framreiðsluplöttum, skálum og háum bjórglösum fyrir á þægilegan og auðveldan hátt. Niðurfellanlegu teinaraðirnar mynda að lokum stórt, flatt svæði sem hentar einstaklega vel til þess að koma fyrirferðarmiklum hlutum fyrir, til dæmis stórum pottum og pönnum. Hver einasti hlutur hefur þannig sína fullkomnu staðsetningu.

Uppþvottavél XXL með AutoOpen - 100% innbyggð

Aukið öryggi

Tvöföld vatnslekavörn (WPS)

Tveir lokar eru í uppþvottavélinni. Ef fyrri lokinn bilar þá lokar sá síðari, segulloki við krana, inntakinu. Hlíf er auk þess á vatnsinntaksslöngunni til öryggis, ef skemmdir verða á innri slöngunni rennur vatn niður hlífina og í gólfbakkann.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Ferskvatns uppþvottavél

Sparneytin uppþvottavél frá Miele

Uppþvottavélin notar einungis ferskvatn. Hún getur þvegið leirtau á AUTO þvottakerfi með einungis 6,0 lítrum af vatni sem er mun minna en innihald venjulegs vasks. Vegna þessa eiginleika hefur vatnsnotkun í Miele uppþvottavélum minnkað um 85% á seinustu 30 árum. Orkunotkun hefur líka minnkað og í raun aldrei verið minni.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Hálf vél

Notkun aðlöguð

Þú getur keyrt uppþvottavélina með góðri samvisku jafnvel þótt hún sé ekki fullhlaðin: í næstum öllum þvottakerfum mælir uppþvottavélin hversu mikið leirtau er í innanrými og aðlagar vatnsnotkun á nákvæman hátt samkvæmt því. Vegna sjálfvirkrar skynjunar vélarinnar á hleðslu, er ekki lengur þörf á því að bíða þar til hún er fullhlaðin.

Uppþvottavél XXL með Knock2Open, AutoDos & AutoOpen - 100% innbyggð

Brilliant GlassCare

Fullkominn glasaþvottur fyrir viðkvæma glervöru

Brilliant GlassCare þvær viðkvæma glervöru varlega. Þvottakerfi fyrir viðkvæm glös keyrir á aðeins 45°C hita. Mjúkir silíkonpúðar á FlexCare vínglasarekkum halda vínglösunum varlega en örugglega. AutoOpen tækni opnar dyr uppþvottavélarinnar sjálfvirkt í lok þvottakerfis. Glösin verða þurr án þess að þau þurfi að pússa sérstaklega í höndunum – og sérhæfðu þvottaefnin með glerverndarformúlu frá Miele tryggja bestu mögulegu meðhöndlun og endingu.