Fara í meginmál

Vörunúmer: URPD365I

Liebherr

Útdraganlegur kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Útdraganlegur kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, úr Prime línu Liebherr. Skápurinn er með LED lýsingu, þægilegum snertiskjá og mjúklokun. 

479.990 kr.

Ekki til á lager

Útdraganlegur kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Undirbyggður kæliskápur án framhliðar

Samræmt heildarútlit fæst í eldhúsinu með því að undirbyggja skápinn undir borðplötu og bak við innréttingarframhlið. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið skápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu. Skápurinn er með VarioBase sökkli sem gerir það að verkum að hægt er að aðlaga hann að innréttingunni bæði hvað varðar hæð og dýpt. Öndun fer fram í gegnum sökkulinn, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Touch & Swipe snertiskjár

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Veldu einfaldlega aðgerðir eins og SuperCool á litaskjánum með því að snerta og swipe-a. Hitastigi er stjórnað alveg jafn auðveldlega. Og ef þú ert ekki að nota skjáinn þá sýnir hann raunhitastig skápsins öllum stundum.

Útdraganlegur kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

Útdraganlegar glerhillur

Það er engin betri leið til að fá yfirsýn yfir matinn í kæliskápnum heldur en með mjúkum útdraganlegum brautum sem eru bæði sjálflokandi og með dempunarbúnaði. Kæliskápurinn er með tveimur glerhillum sem sitja á full-útdraganlegum brautum og tryggja þær að innihald skápsins sé geymt á öruggan hátt og aðgengið sé frábært.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

LED lýsing 

Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Ljósið er staðsett fyrir miðju, fyrir framan glerhillurnar og tryggir þannig góða lýsingu niður allan skápinn. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Kæliskápur til innbyggingar undir borðplötu - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. 

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi - Pure

SuperCool hraðkæling

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.