
Tækifæri til að endurupplifa hlýleika og nærveru eldhúsa fyrri tíma
Fáguð og virðuleg hönnun, innblásin af klassískum nýlendu stíl, sem ber mann aftur til fortíðar. Tækin í Colonial línunni endurskapa þá hlýlegu stemningu og notalegu nærveru sem mörgum finnst einkennandi fyrir eldhús fyrri tíma. Línan er hönnuð fyrir fólk sem kann að meta þokkafullan, vandaðan og vingjarnlegan stíl og vill skapa einstakt andrúmsloft í eldhúsinu. Smekkleg hönnun fyrir alla sem vilja bæta við vott af fáguðum glæsibrag inn í hjarta heimilisins.

Öflugur háfur
Háfurinn er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu, til dæmis ef verið er að búa til hvissandi wokrétt í pönnu eða lyktarmikinn karrýrétt.

Fitufilterar úr ryðfríu stáli og LED lýsing
Fitufilterar háfsins eru úr ryðfríu stáli, þá er auðvelt að fjarlægja og þrífa í uppþvottavél. Háfurinn er einnig með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.

Breytileg loftrás
Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.
