Fara í meginmál

Vörunúmer: KC19AOE

Smeg

Veggháfur - Cortina

Hönnun og glæsileiki eldhússins endurspeglast oft á tíðum í háfnum sem setur punkinn yfir i-ið. Veggháfurinn er 90 cm breiður og passar fullkomlega við önnur eldhústæki úr Cortina línu smeg.

335.640 kr.

Sérpöntun

Veggháfur - Cortina

Blær fortíðar endurvakinn

Cortina línan er hönnuð í samstarfi við járnsmiðsmeistarann Giancarlo Candeago. Innblásturinn er fenginn frá handverksmeisturum ítalskra fjalla til forna og sköpunarverka þeirra úr smíðajárni. Stíllinn endurspeglar einstakar útlínur fjallakofa í Ölpunum og arkítektúr forn ítalskra híbýla. Vandað efnisval og notkun lita gefa tækjunum óviðjafnanlega heillandi útlit. Tækin eru fáguð og vekur hönnun þeirra upp töfra þessarar gömlu smíðajárns handiðnar.

Veggháfur - Cortina

Öflugur háfur

Háfurinn er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu, til dæmis ef verið er að búa til hvissandi wokrétt í pönnu eða lyktarmikinn karrýrétt.

Veggháfur - Cortina

LED lýsing

Háfurinn er með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.

Gashelluborð - Cortina

Breytileg loftrás

Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.