
Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum
Opera háfar tilheyra Classic línu Smeg, en línan er hönnuð í samstarfi við Guido Canali arkítekt. Ryðfrítt stál er aðalsmerki classic línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

Skapaðu fallega heildarmynd í eldhúsinu
Háfurinn annar fullkomlega eldavél sem er jafn breið og háfurinn sjálfur. Skemmtileg heildarmynd fæst í eldhúsið með því að para háfinn saman við eldavél í sömu línu. Háfurinn er með aflaukandi booster stillingu sem er hægt að velja ef eldamennskan kallar á það. Þá sogar háfurinn til sín mikla lykt og gufu, til dæmis ef verið er að búa til hvissandi wokrétt í pönnu eða lyktarmikinn karrýrétt.
%2520fitufilterar-9bc996e8-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Fitufilterar úr ryðfríu stáli og LED lýsing
Fitufilterar háfsins eru úr ryðfríu stáli, þá er auðvelt að fjarlægja og þrífa í uppþvottavél. Háfurinn er einnig með LED ljósum sem eru endingargóð, hagkvæm og lýsa vinnuflötinn undir háfnum fullkomlega upp. Lýsing háfsins er algerlega óháð viftunni og þar af leiðandi er mögulegt að skapa fallega umhverfislýsingu með háfnum í eldhúsinu.

Breytileg loftrás
Mögulegt er að nota veggháfinn annað hvort til útblásturs eða í hringblæstri. Veggháfur sem er settur upp til útblásturs dregur að sér lykt og gufu sem myndast við matreiðslu og knýr út úr húsinu. Fullkomin loftskipti eiga sér þannig stað í eldhúsinu. Háfnum má breyta í hringrásandi háf með hringrásarsetti og kolafilter. Í hringblæstri dregur háfurinn að sér lykt og gufu, knýr loftið í gegnum kolafilter sem hreinsar það og skilar hreinsuðu loftinu aftur inn í eldhúsið.
