-80064e20-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
CleanCover
Auðveld og örugg þrif á innrarými
Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Fitufilter úr ryðfríu stáli
Fagurfræði og góð hönnun
Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Virkur AirClean kolafilter
Algerlega lyktarlaust eldhús
Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri getur þú notað virkan kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Þessum einnota filter þarf að skipta út reglulega.
-min-2be26c9b-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Miele sérsmíði
Sérsniðnar lausnir frá Miele
Óskir viðskiptavina eru forgangskröfur hjá Miele. Hafa verður marga þætti í huga við val á háfi, til dæmis óskir varðandi hönnun, lengd tengibúnaðs, uppstillingu í herbergi, tegund eldamennsku, hæð notanda og aðrar sérkröfur. Háfinn er hægt að fá sérsmíðaðann eftir þínum þörfum. Þú hefur einnig möguleika á því að sérpanta háfinn í þeim RAL lit sem þú villt.

Öflugur, hágæða mótor
Sérstaklega öflugur
Háfurinn er með hágæða miðflótta viftu sem er með sogi á tveimur hliðum. Þessar öflugu einingar tryggja kraftmikil loftskipti öllum stundum auk hámarks sogkrafts. Viftan er þægilega lágvær, þrátt fyrir það hversu öflug hún er.

Handgert í Þýskalandi
Hver Miele háfur er einstakur
Næstum allir Miele háfar eru þróaðir og framleiddir í verksmiðju Miele í Arnsberg, Þýskalandi og eru fyrir mestan part handgerðir. Hver háfur er einstakur. Á hverju stigi framleiðslunnar er þörf fyrir ákveðna verkkunnáttu handverksfólks: allt frá því að móta stálið að því að sjóða það saman og slípa. Skuldbinding starfsfólks, kunnátta þeirra, sköpunarkraftur og löngun til að skara fram úr hefur haft mikil áhrif á þá stöðu sem Miele hefur á markaðinum í dag.
-b84f7f53-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Öryggisvirkni
Öryggið alltaf sett á oddinn
Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.
