
Víngeymsluskápur
Við réttar geymsluaðstæður halda vín áfram að þroskast í flöskum. Hægar efnabreytingar eiga sér stað við þroskann sem mynda flóknari bragð- og ilmefni í vínunum og ná þau einnig meiri dýpt. Góð og stöðug geymsluskilyrði eru forsenda farsællar langtímageymslu. Víngeymsluskápar frá Liebherr bjóða upp á sömu geymsluskilyrði vína og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Skáparnir halda mjög stöðugu og nákvæmu hitastigi í öllu innanrými sem gerir þá að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun vína.

Lágmarks titringur
Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring og liggja flöskurnar á stöðugum viðarhillum úr gegnheilum beykivið. Þetta tryggir að vínið nær að þroskast í næði, óáreitt.

Nákvæm hita- og rakastýring
Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hita- og rakaskilyrði. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugra hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis skápinn sveiflist mjög mikið. Rétt rakastig er einnig lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Bæði hitastig og rakastig skápsins eru sýnileg á skjá, hitastig er stillanlegt frá +5°C til +20 °C og rakastig frá 50%-80%.

Hæðarstillanlegar viðarhillur
Hámarks rúmtak. Liebherr víngeymsluskápur gerir þér einnig kleift að skipuleggja vaxandi vínsafnið á auðveldan hátt. Innvols skápsins er hannað þannig að mögulegt sé að geyma vínflöskurnar þannig að flöskuhálsarnir mætist á þeim miðjum og tryggir það fulla nýtni á innanrýminu. Nægt rými er þar af leiðandi fyrir sívaxandi vínbirgðir, svo ekki hika við að halda áfram að safna.

EasyFill – auðveld hleðsla
Hurðin á vínskápnum þínum helst opin ef hún er opnuð meira en sem nemur 90° sem tryggir einstaklega auðvelda hleðslu. Auk þess lokast hurðin sjálfkrafa þegar hún stendur opin sem nemur minna en 90°, alltaf jafn mjúklega og þörf er á fyrir dýrmætt innihald vínkæliskápsins.

Virkur kolafilter
Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.

LED lýsing - loftljós
Þú ættir alltaf að eiga auðvelt með að finna uppáhalds vínið þitt. Víngeymsluskápurinn er með LED loftlýsingu sem er staðsett fremst í skápnum. Lýsingin lýsir upp allt innanrými skápsins, tryggir að enginn skuggi falli á flöskurnar og sýnir vínsafnið þitt í sínu besta ljósi. Hitamyndun frá LED lýsingu er í algjöru lágmarki, hún gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma.
