
Undirbyggður vínkæliskápur með framhlið
Undirbyggðir vínkæliskápar passa undir borðplötu og eru prýði í hvers kyns eldhúsum. Öndun fer fram í gegnum hæðarstillanlegan sökkul skápsins, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna. Skáparnir varpa fallegu LED ljósi á vínflöskurnar og eru með vandaðri glerhurð sem veitir bestu mögulegu yfirsýn yfir þær.

Vínkæliskápur með aðskildum kælisvæðum
Vinidor vínkæliskápar geta geymt rauðvín, hvítvín og freyðivín við kjörhitastig í tveimur eða þremur fullkomlega aðskildum kælisvæðum. Hitastig er stillanlegt frá +5°C til +20°C, hitastýring rýmanna er algerlega óháð hvoru öðru og eru hólfin misstór sem hentar fyrir fjölbreyttar gerðir vína. Hámarks sveigjanleiki í notkun fæst með Vinidor vínkæliskápum, því auk þess að henta sem neysluskápur er einnig mögulegt að nota vínkæliskápinn fyrir langtímageymslu víns.

LED lýsing
Falleg LED lýsing er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir fallega birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma. Lýsingin er auk þess dimmanleg og gefur afskaplega fallega umhverfislýsingu.

Nákvæm hitastýring
Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hitaskilyrði. Kjörhitastig fyrir þroska víns er það sama hjá öllum víntegundum, hvort sem um ræðir rauðvín eða hvítvín, og liggur á milli +10°C og +12°C. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugara hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis sveiflist mjög mikið. Að auki er þéttikanntur á milli kælisvæða sem tryggir að hvert einasta kælisvæði er með fullkomlega aðskildri og sjálfstæðri hitastjórnun.

Fullkomið rakastig - HumiditySelect
Rétt rakastig er lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Í vínkæliskápnum eru fullkomin rakaskilyrði og hægt er að velja á milli "venjulegt rakastig" og "Hátt rakastig", sem tryggir góða öndun gegnum rakann korktappa víns á meðan þroskun þess fer fram.

Lágmarks titringur og UV- vörn
Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Virkur kolafilter
Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.

Hægt að snúa hurðaropnun
Vínkæliskápurinn kemur staðlað hægri hengdur, það er með hurðarhjörunum hægra megin. Mögulegt er að snúa hurðaropnuninni og hafa skápinn vinstri hengdan, allt eftir því sem hentar þér og hvar staðsetja á skápinn.
