
Undirbyggður vínkæliskápur með framhlið
Undirbyggðir vínkæliskápar passa undir borðplötu og eru prýði í hvers kyns eldhúsum. Öndun fer fram í gegnum hæðarstillanlegan sökkul skápsins, sem þýðir að ekki er þörf fyrir að setja loftop og rist í borðplötuna. Skáparnir varpa fallegu LED ljósi á vínflöskurnar og eru með vandaðri glerhurð sem veitir bestu mögulegu yfirsýn yfir þær.

Vínkæliskápur með aðskildum kælisvæðum
Vinidor vínkæliskápar geta geymt rauðvín, hvítvín og freyðivín við kjörhitastig í tveimur eða þremur fullkomlega aðskildum kælisvæðum. Hitastig er stillanlegt frá +5°C til +20°C, hitastýring rýmanna er algerlega óháð hvoru öðru og eru hólfin misstór sem hentar fyrir fjölbreyttar gerðir vína. Hámarks sveigjanleiki í notkun fæst með Vinidor vínkæliskápum, því auk þess að henta sem neysluskápur er einnig mögulegt að nota vínkæliskápinn fyrir langtímageymslu víns.

TipOpen
TipOpen snertitækni gerir þér kleift að fella vínkæliskápinn á fullkominn hátt inn í höldulausar innréttingar. Þegar ýtt er á hurðina, opnast dyrnar sjálfkrafa um 7 cm sem veitir þægilegt aðgengi. Dyrnar lokast síðan aftur sjálfkrafa með SoftSystem mjúklokun ef þær er ekki opnaðar að fullu á næstu 3 sekúndum.

LED lýsing
Falleg LED lýsing er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir fallega birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma. Lýsingin er auk þess dimmanleg og gefur afskaplega fallega umhverfislýsingu.

Mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðinni, dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað og tryggir þannig að hurðin lokist varlega. Hurðin lokast að sjálfsdáðun ef opnun er minni en u.þ.b. 45° hjá frístandandi skápum eða minni en u.þ.b. 30° hjá innbyggðum skápum.

Útdraganlegar hillur á brautum
Vínkæliskápurinn er með gegnheilum viðarhillum sem sitja á útdraganlegum brautum. Hillurnar henta einstaklega vel til þess að geyma Bordeaux flöskur á öruggan hátt, veita bæði góða yfirsýn og þægilegt aðgengi. Hillurnar eru handgerðar úr ómeðhöndluðum við og mögulegt er að smella á þær merkimiðum sem veita þér skýra yfirsýn yfir vínsafnið þitt. Hægt er að færa til burðarbitana í hillum og koma þannig fyrir Burgundy- og kampavínsflöskum

Nákvæm hitastýring
Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hitaskilyrði. Kjörhitastig fyrir þroska víns er það sama hjá öllum víntegundum, hvort sem um ræðir rauðvín eða hvítvín, og liggur á milli +10°C og +12°C. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugara hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis sveiflist mjög mikið. Að auki er þéttikanntur á milli kælisvæða sem tryggir að hvert einasta kælisvæði er með fullkomlega aðskildri og sjálfstæðri hitastjórnun.

Fullkomið rakastig - HumiditySelect
Rétt rakastig er lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Í vínkæliskápnum eru fullkomin rakaskilyrði og hægt er að velja á milli "venjulegt rakastig" og "Hátt rakastig", sem tryggir góða öndun gegnum rakann korktappa víns á meðan þroskun þess fer fram.

Lágmarks titringur og UV- vörn
Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Virkur kolafilter
Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.

Hægt að snúa hurðaropnun
Vínkæliskápurinn kemur staðlað hægri hengdur, það er með hurðarhjörunum hægra megin. Mögulegt er að snúa hurðaropnuninni og hafa skápinn vinstri hengdan, allt eftir því sem hentar þér og hvar staðsetja á skápinn.
