
Einstök lýsing og vandað efnisval
Vandað efnisval, einfalt form og leikur að ljósi eru hvað mest einkennandi fyrir WAVE UX. Háfurinn er hannaður af FABRIZIO CRISÀ og eru tvenns konar kúplar fáanlegir; ryðfrítt stál og mattur svartur. Einkennandi bylgjur, sem háfurinn dregur nafn sitt af, eru útskornar í kúpulinn og hleypa ræmurnar mjúkri LED lýsingu út frá háfnum. Þrjú stök LED ljós eru staðsett neðst á háfnum, en þau skína beint niður á helluborðið og veita bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Eftirtektarverður háfur sem verður auðveldlega í brennidepli í eldhúsinu.

Fágaður háfur fyrir opin rými
Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. Uppsetningarmöguleikar WAVE UX eru tvenns konar. Annars vegar er hægt að hengja hann upp á vegg og hins vegar er hægt að hafa hann hangandi í vírum niður úr loftinu. Hangandi háfar eru mjög léttir á að líta og sóma sér þar af leiðandi mjög vel uppsettir yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Einnig er mögulegt að kaupa fjarstýringu, sem stýrir öllum stillingum háfsins, til þæginda.

Einföld þrif og LongLife kolafilter
Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar. Filterar WAVE UX eru staðsettir fyrir ofansvartan stílhreinan svartan skjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.
